Erlent

Fær­eyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíu­kyndingu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Stærsta orkuver Færeyja í Kaldbaksfirði framleiðir raforku með olíubrennslu.
Stærsta orkuver Færeyja í Kaldbaksfirði framleiðir raforku með olíubrennslu. Egill Aðalsteinssson

Færeyingar stefna að því að hætta raforkuframleiðslu með dísilolíu fyrir árið 2030. Samtímis vinna þeir að því að skipta út olíukyndingu íbúðarhúsa fyrir varmadælur og hyggjast þrefalda fjölda vindmylla, úr þrjátíu í níutíu.

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá stærsta raforkuver Færeyinga við Kaldbaksfjörð skammt frá Þórshöfn. Þar eru það skorsteinar sem setja mestan svip á umhverfið enda er raforkan þar framleidd með olíu.

Fyrir fáum árum voru yfir sextíu prósent raforkunnar framleidd með þessum hætti og þurftu Færeyingar að verja allt að fjórðungi útflutningstekna sinna til olíukaupa. En svo fóru þeir að virkja vindinn enda takmarkað vatnsafl Færeyja að mestu fullbeislað.

Finn Jakobsen, forstjóri Magn í Færeyjum.Egill Aðalsteinsson

Stærsta olíufélag eyjanna, Magn, stendur jafnframt að uppbyggingu vindmyllugarða og við spurðum forstjórann hvernig orkuskiptin væru að ganga í Færeyjum.

„Það gengur vel en hægt. Því að í orkuskiptum höfum við metnaðarfullt markmið um að árið 2030 verði búið að skipta út allri olíu í landi fyrir rafmagn. Svo við stefnum hátt en það gengur samt hægt en þetta er á réttri leið,” segir Finn Jakobsen, forstjóri Magn.

Vindmyllur á Gellingarkletti ofan Þórshafnar.Egill Aðalsteinsson

Vindorkulundir eru núna á fjórum stöðum í Færeyjum en mestu munar um þann nýjasta, sem er á fjöllunum ofan Þórshafnar, á Gellingarkletti. Stærstu vindmyllurnar þar eru um níutíu metra háar. Svo tröllauknum risum á bara eftir að fjölga, ef að líkum lætur.

Vindmyllur eru þegar orðnar áberandi á færeyskum fjöllum og teljast í tugum.

„Í dag eru um þrjátíu vindmyllur sem snúast árið um kring. Við ætlum að þrefalda þann fjölda til að mæta þörfinni fyrir upphitun,” segir Finn.

Skorsteinar raforkuversins setja svip sinn á umhverfið í Kaldbaksfirði.Egill Aðalsteinsson

Færeyingar hafa engan jarðhita og hafa því neyðst til að kynda hús sín með olíu.

„Öll íbúðarhús í Færeyjum, eða meginhluti íbúðarhúsa, hafa sína eigin olíukyndingu og nota olíu til húshitunar. Það sem við einbeitum okkur að er að skipta út olíukyndingu fyrir varmadælur.

Það eru fleiri hundruð sem skipta á hverju ári. Svo að á næstu tuttugu árum verðum við langt komin með að koma húsakyndingunni yfir í raforku,” segir Finn Jakobsen.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Fyrir ellefu árum undirrituðu fjármála- og atvinnumálaráðherrar Færeyja og Íslands undir viljayfirlýsingu um samstarf í orkumálum þar sem kanna átti kosti þess að leggja raforkusæstreng milli landanna, eins og fram kom í þessari frétt:


Tengdar fréttir

Færeyingar fá núna raforku með virkjun sjávarstrauma

Færeyingar eru byrjaðir að virkja sjávarföllin í samstarfi við sænskt þróunarfélag. Túrbína upp á 1,2 megavött er þegar komin í sjó og þykir reynslan það góð að farið er að undirbúa 200 megavatta raforkuframleiðslu úr sjávarstraumum við Færeyjar.

Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga

Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×