Fótbolti

Al­gjör mar­tröð eins manns þegar Celtic vann erkióvininn

Sindri Sverrisson skrifar
John Lundstram trúir vart eigin augum eftir að hafa skorað sjálfsmark í slag Celtic og Rangers í dag.
John Lundstram trúir vart eigin augum eftir að hafa skorað sjálfsmark í slag Celtic og Rangers í dag. Getty/Andrew Milligan

Skotlandsmeistaratitilinn blasir við Brendan Rodgers og hans mönnum í Celtic eftir 2-1 sigur á erkifjendunum í Rangers í Glasgow í dag.

Sigurinn þýðir að Celtic heldur toppsætinu og er með 87 stig, sex stigum meira en Rangers þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Eitt stig í viðbót dugar því Celtic til að landa titlinum endanlega, í stað þess að Rangers næði að jafna Celtic að stigum.

Það gerði Rangers sérstaklega erfitt fyrir að missa John Lundstram af velli með rautt spjald fyrir slæma tæklingu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Enski miðjumaðurinn átti hreint skelfilegan dag því þegar hann fékk rauða spjaldið var staðan þegar orðin 2-1, og hann búinn að skora slysalegt sjálfsmark.

Matthew O‘Riley hafði komið Celtic yfir á 35. mínútu og Lundstram skoraði sjálfsmarkið skömmu síðar, áður en Cyril Dessers kom boltanum framhjá Joe Hart og minnkaði muninn fyrir Rangers á 40. mínútu.

Liðin mætast aftur í úrslitaleik skoska bikarsins 25. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×