Innlent

Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þröstur Ólafsson, hagfræðingur og fastagestur Sundhallar Reykjavíkur, í innilauginni í dag.
Þröstur Ólafsson, hagfræðingur og fastagestur Sundhallar Reykjavíkur, í innilauginni í dag. Vísir/Arnar

Fastagestur Sundhallar Reykjavíkur segir að boðaðar viðgerðir á innilaug feli í sér „ófyrirgefanlegan skaða“ á hönnun Guðjóns Samúelssonar. Forstöðukona Sundhallarinnar skilur áhyggjur fastagesta en segir breytingarnar nauðsynlegar.

Tíu fastagestir Sundhallarinnar með Þröst Ólafsson hagfræðing í broddi fylkingar kalla eftir því í Morgunblaðinu í dag að horfið verði frá fyrirhuguðum breytingum á innilauginni. Og þeir sem fylgst hafa með málefnum sundlauga borgarinnar síðustu ár vita að þetta er ekki í fyrsta sinn sem téður Þröstur lætur sig málið varða. Hann ítrekar skoðun sína þar sem við hittum hann lauginni í dag; ótækt sé að breyta hönnun Guðjóns Samúelssonar.

„Það stendur til að taka þessa gömlu bakka hérna, sem er mikill karakter í og eru mjög einkennandi og hluti af þessari hönnun allri, það á að taka þá og leggja þá af, slétta þetta út og koma með rist hérna uppi,“ segir Þröstur og bendir fréttamanni á umrædda bakka sem litið hafa eins út í áratugi.

Það á semsagt að færa bakka innilaugarinnar í nútímalegra horf, meira í ætt við þann hátt sem hafður er á í útilauginni. Þar eru bakkarnir eins og í flestum nýrri laugum; bakkinn flúttar við yfirborð vatnsins og affallið fer beint ofan í ristar í sömu hæð.

„Það er miklu meira en nauðsynlegt að gera við þetta,“ segir Þröstur. „En það er ekki nauðsynlegt að breyta hönnuninni frá Guðjóni, engin þörf á því. Við eigum að leyfa henni að vera svona, hún er falleg og það væri verið að skemma merkilegt listaverk,“ segir hann.

„Það yrði mikill skaði sem væri ekki fyrirgefinn eftir fimmtíu, sextíu ár.“

Drífa Magnúsdóttir, forstöðukona Sundhallar Reykjavíkur.Vísir/arnar

Drífa Magnúsdóttir forstöðukona Sundhallarinnar segir að framkvæmdir muni líklega hefjast í byrjun næsta árs, 2025. Hún skilur áhyggjur Þrastar og félaga. Breytingin sé þó nauðsynleg og í öryggisátt.

„Svo verður betri hljóðvist inni í lauginni og þetta verður líka betra fyrir kennara, þeir bíða spenntir eftir þessu,“ segir Drífa.

En væri inni í myndinni að gera við laugina og bakka hennar en halda upprunalegu útlit?

„Mögulega mætti það en ef við ætlum að reka hér almenningssundlaug verðum við að uppfylla þessa staðla.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×