Sport

Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabba­mein til að sleppa við bann

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sara Benfares hefur verið dæmd í fimm ára keppnisbann.
Sara Benfares hefur verið dæmd í fimm ára keppnisbann. Ezra Shaw/Getty Images

Langhlauparinn Sara Benfares hefur verið dæmd í fimm ára keppnisbann eftir að þónokkur bannefni fundust í lyfjaprófi sem hún tók. Faðir hennar, Samir, sagði að ástæðan væri sú að hún hefði verið í lyfjameðferð við krabbameini undanfarið ár.

Hin 22 ára gamla Sara féll á lyfjaprófi síðasta haust. Fram að því hafði hún, verandi frá Þýskalandi, aldrei látið frjálsíþróttasambandið vita að hún væri með – eða í lyfjameðferð við – krabbamein.

Í kjölfarið sagði faðir hennar að hún hefði undanfarið ár verið í lyfjameðferð vegna beinkrabbameins og að lyfin ólöglegu sem fundist hefðu í lyfjaprófi hennar væru öll hluti af krabbameinsmeðferðinni.

Hún hafði hins vegar að keppa reglulega árið á undan og fannst þýska frjálsíþróttasambandinu maðkur vera í mysunni. Það fékkst svo í raun staðfest þegar Sofia, systir Söru, féll einnig á lyfjaprófi.

Söru var rúllað af brautinni á HM í frjálsum í Oregon sumarið 2022.EPA-EFE/Etienne Laurent

Hinn þýski Fritz Sörgel er sérfræðingur þegar kemur að lyfjamisnotkun íþróttafólks. Hann segir að það sé eitt að taka ólögleg lyf en það sé talsvert verra að ljúga til um að vera með krabbamein til að sleppa við refsingu. Með því sértu að skaða öll þau sem greind hafa verið krabbamein.

„Slík lygi og slíkt svindl er mun verra en lyfjamisnotkun fyrir mér,“ sagði Sörgel.

Systurnar voru dæmdar í tímabundið bann á meðan mál þeirra var til rannsóknar. Í gær, mánudag, féll svo dómur í máli Söru Benfares. Hún hefur verið dæmd í fimm ára bann. Hægt er að áfrýja dómnum sem tekur mið af þeirri staðreynd að það sé ljóst að Sara hafi til lengri tíma notað ólögleg lyf til að bæta frammistöðu sína.

Sara endaði í 12. sæti í 5000 metra hlaupinu á HM í frjálsum íþróttum síðasta sumar og var ein af vonarstjörnum Þýskalands fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×