Gleðihormón skýra góða mætingu í Zumba tíma Dans & Jóga Hjartastöð 30. janúar 2024 12:37 Dansinn í Zumbatímunum gerir margt annað en styrkja vöðva og þjálfa líkamann. Íslendingar dilla sér í zumba sem aldrei fyrr og frábær mæting í hvern tímann á fætur öðrum hjá Dans og jóga, Hjartastöðinni. Kennararnir þar segja dans hafa sérstök áhrif á fólk, honum fylgi frelsistilfinning sem á sér mögulega líffræðilegar rætur. „
Okkur langar náttúrulega að eigna okkur sjálfum það hversu stöðugt er mætt í tímana hjá okkur, við séum svo skemmtileg að fólk setji það í forgang að hitta okkur nokkrum sinnum í viku. En ég held að það sé vísindalegri skýring á háu mætingarhlutfalli í Zumba partýin okkar,“ segir Jóhann Örn Ólafsson, danskennari og einn eigandi Dans og Jóga, Hjartastöðvarinnar. Jóhann segir dans hafa sérstök áhrif á fólk og geri margt annað en styrkja vöðva og þjálfa líkamann. Félagslegi þátturinn sé mikilvægur en líffræðilegi þátturinn gegni lykilhlutverki. Það er alltaf mikið stuð í zumbatímunum. Gleðihormónin flæða um kroppinn „Mannkynið hefur komið saman og dansað frá örófi alda og dans sem félagsleg athöfn sem sameinar fólk á gleðistundum þekkist í öllum menningarheimum. Það er engin tilviljun. Öll líkamsrækt og hreyfing leysir hins vegar einnig úr læðingi taugaboðefni sem gjarnan eru í daglegu tali kölluð gleðihormón en dans við skemmtilega tónlist gerir það í mun meira mæli en önnur hreyfing. Ein skýringin er sú að í dansi sleppir fólk oft fram af sér beislinu á alveg sérstakan hátt og tjáir líðan sína og tilfinningar í hreyfingunum sem þá kallar fram frelsistilfinningu sem síðan leysir úr læðingi meira magn af þessum hormónum,“ útskýrir Jóhann. „Það er sem dæmi talað um Endorfín sem innrænt morfín í vísindasamfélaginu og það ætti að segja okkur eitthvað um hversu áhrifamikil þessi efni eru fyrir líkamann. Ég brosi nú oft út í annað þegar ég heyri fólk tala um að það sé háð Zumba tímunum okkar vegna þess að það er líklega alveg rétt ályktað, því hver vill fá minna af heilbrigðri og sannri gleðivímu í líf sitt?“ Serótónín er mikilvægt boðefni fyrir skap og líðan og það virðist aukast í dansinum. Serótónín eykst í Zumba „Hvort við upplifum okkur hamingjusöm eða ekki fer eftir magninu sem við framleiðum af þessum efnum og því gríðarlega mikilvægt fyrir alla að kunna leiðir til að sækja þau í auknu mæli. Það hefur m.a. verið sýnt fram á það í rannsóknum að framleiðsla á einu þessara efna, Serótónín, eykst umtalsvert meira í hreyfingu á borð við Zumba samanborið við t.d. við lyftingar. Serótónín er gríðarlega mikilvægt boðefni fyrir skap og líðan og ef einstaklingar kljást við kvíða og þunglyndi þá er talið að það sé vegna skorts á serótónín,“ segir Jóhann. Partýstemmning í tímum Líkamsræktar prógrammið Zumba nýtur mikilla vinsælda um allan heim af góðri ástæðu. Það er samsett úr blöndu af æfingum og dansi og tímarnir eru settir upp eftir ákveðinni formúlu til að gefa fólki sem fjölbreyttasta og besta hreyfingu á meðan það gleymir sér í taktinum við skemmtilega tónlist og tíminn líður fljótt. „Við köllum þessa tíma alltaf Zumba partý, því við teljum það algjört lykilatriði til þess að ná árangri í allri sjálfsrækt að fólk hafi gaman af því sem það er að gera. Í okkar huga eru þeir að standa sig best í tímunum sem fá mesta gleði og gaman út úr þeim frekar en þeir sem kunna flesta dansa eða ná öllum sporunum,“ segir Jóhann. Zumba henti fólki á öllum aldri og létti lundina í skammdeginu. Þau sem eru í toppformi fá ekki síður mikið út úr tímunum en þau sem eru að byrja í hreyfingu. „Zumba er eitthvað sem ég mæli hiklaust með fyrir alla, ég tala nú ekki um í skammdeginu á Íslandi. Fólk stýrir erfiðleikastiginu svo mikið sjálft eftir því hvað það setur mikla orku í hreyfingarnar. Þeir sem eru í toppformi geta því fengið mjög mikið út úr tímum sem henta ekkert síður þeim sem eru að byrja í hreyfingu. Fyrir þá sem hafa enga reynslu af dansi og eru hikandi við að stökkva á vagninn bjóðum við einnig upp á byrjendanámskeið þar sem er farið rólega í grunnsporin svo fólk komi undirbúið í Zumba partýin okkar,“ segir Jóhann. Dansinn lækki streitu og fylli fólk sjálfstrausti. „Að dansa í samfélagi við aðra gefur ákveðna félagslega nánd og rannsóknir hafa sýnt fram á að dans bætir minnið, lækkar streitu og eykur sjálfstraust. Fólki sem er hrætt við að tala fyrir framan fólk er t.d. gjarnan bent á að stunda dans vegna þess að það er vel þekkt hvað dans er öflug leið til að hjálpa fólki að sleppa sér og vera minna sjálfsmeðvitað í kringum aðra og styrkja sig félagslega.“
Heilsa Dans Mest lesið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Lífið The Lazarus Project: Varúð, veldur svefnleysi Gagnrýni Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Lífið Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn „Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Sjá meira