Innlent

„Svona hús fer ekki í sölu á hverjum degi“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ólíkir heimar mættust í húsinu á Hverfisgötu sem hýsti bæði athvarf Framsóknarflokksins og skemmtistaðarins Miami.
Ólíkir heimar mættust í húsinu á Hverfisgötu sem hýsti bæði athvarf Framsóknarflokksins og skemmtistaðarins Miami. vísir/vilhelm

Hús Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33 hefur verið skráð á ný til sölu. Húsið, sem er í meirihlutaeigu flokksins, hefur verið falt í rúm fjögur ár.

Á fasteignavef Vísis kemur fram að fasteignamat efri hæða, sem eru í eigu flokksins, séu 465 fermetrar og er fasteignamatið 303 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1965 en Framsóknarflokkurinn eignaðist húsið árið 1998. 

Áður hefur verið fjallað um sögu hússins og eignarhald þar sem fram kom að eigendur að rúmlega fimm prósentum hlutafjár í félaginu Skúlagarði hf., sem átti höfuðstöðvar Framsóknarflokksins, séu farnir yfir móðuna miklu. Árið 2016 voru skráðir hluthafar í félaginu á fjórða hundrað. Meðal skráðra eigenda voru til að mynda Steingrímur Hermannsson, Vilhjálmur Hjálmarsson og Halldór E. Sigurðsson fyrrverandi þingmenn og ráðherrar flokksins.

Helgi Héðinsson framkvæmdastjóri flokksins segir að búið sé að greiða úr eignarhaldi í dag. 

„Þetta er nánast eingöngu í eigu flokksins,“ segir Helgi í samtali við Vísi. „Það er búið að taka töluvert til í þessu.“

„Við höfum verið með þetta til sölu af og á, frá árinu 2019. Það er ekki fyrr en núna sem eignin er til sölu í heilu lagi.“

Samkvæmt núverandi auglýsingu er reiknað með að kaupandi geti eignast allt húsið. Skemmtistaðurinn Miami var rekinn á neðri hæð hússins en staðnum var lokað í júlí á síðasta ári.

„Planið er að losa þessa eign. Aðgengismál eru ekki nógu heppileg og húsið hentar okkur ekki nógu vel. Planið er að selja þessa eign, það er nokkur áhugi núna og þegar það fer í gegn er næsta skref að finna okkur heppilegt húsnæði.

Þetta er mjög álitleg eign og spennandi tækifæri til að gera ýmislegt. Heilt hús í miðbænum, rúmir átta hundruð fermetrar, svona hús fer ekki í sölu á hverjum degi,“ segir Helgi að lokum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×