Menning

Ríkiskaup og bílaleigubifreiðar

Nýlega skrifuðu Ríkiskaup undir svokallaðan rammasamning um bílaleigubifreiðar við Bílaleigu Flugleiða ehf., Hertz og Höld ehf. ásamt Bílaleigu Akureyrar. Í vor auglýstu Ríkiskaup fyrir hönd stofnana ríkisins eftir þátttakendum í útboði sem fór fram og var þá óskað eftir tilboðum í fjóra flokka bifreiða af öllum stærðum og gerðum. Í útboðslýsingu kom fram að leigutökum skyldi heimilt að skila bifreiðunum á viðkomandi flugvöllum auk afgreiðslustöðva bjóðanda á höfuðborgarsvæðinu, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn, Keflavík og þar sem bjóðandi hefði aðsetur sitt, án tillits til þess hvar bifreiðarnar hefðu verið teknar á leigu. Þá var tekið fram að boðnar bílaleigubifreiðar skyldu að jafnaði ekki vera eldri en tveggja ára. Ekki er hægt að gefa sér fyrir fram hversu mikil viðskiptin verða en til þess að gefa hugmyndir um umfang notkunar keypti ríkið þjónustu bílaleiga fyrir um 30 milljónir króna á síðasta ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×