Lífið

Andrea Róberts selur í Garða­bænum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Andrea festi kaup á húsinu árið 2022.
Andrea festi kaup á húsinu árið 2022.

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri hjá FKA, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Tjarnarflöt í Garðabæ á sölu. Húsið var byggt árið 1967 og er á einni hæð. Ásett verð er 189 milljónir.

„Fuglasöngur á dásamlegum stað með drauma nágranna 360° í kringum húsið. Hvað liggur þér á hjarta? spyr Facebook þegar ég deili þessum hlekk sem segir sanna sögu af mér í persónulega lífinu sem er sú að við erum opin fyrir því að selja húsið okkar,“ skrifar Andrea og deilir færslunni á Facebook.

Fasteignaljósmyndun

Andrea segir húsið staðsett við götu sem hefur átt sérstakan stað í hjarta hennar frá unga aldri. Margir velta því þá eflaust fyrir sér hvers vegna hún vilji flytja á ný. En fjölskyldan festi kaup á eigninni árið 2022 eftir að hafa selt einbýlishús við Hvannalund 15 í Garðabæ.

„Þið sem mig þekkja vitið að það er ávallt mikil framkvæmdagleði í gangi og umframorka í stórum skömmtum - og það virðist ekkert vera að minnka með árunum. Þannig að þetta gæti verið upphafið á einhverju nýju ef fólk sýnir þessari glæsilegu eign áhuga næstu daga. Þá erum við geim – svo einfalt er það,“ skrifar Andra um ákvörðunina.

Um er að ræða 195 fermetra einbýlishús á einni hæð. Samtals eru þrjú svefnherbergi, með möguleika á því fjórða, og tvö baðherbergi.

Heimili fjölskyldunnar er innréttað á fallegan máta þar sem gráir litatónar, viður og grænar plöntur eru í forgrunni. Miðrými hússins er bjart með góðri lofthæð og samanstendur af stofu og borðstofu. Þaðan er gengið inn í eldhús með hvítri innréttingu. 

Inn af eldhúsi er þvottahús, þaðan er útgengt í stóran skjólsæla garð með háum trjám. Í kring­um húsið er timb­ur­ver­önd með heitum potti og glerskáli sem nýtist allan ársins hring. 

Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun






Fleiri fréttir

Sjá meira


×