Það er ekki hægt að stela hugmyndum Klara Nótt Egilson skrifar 30. september 2023 16:00 Ég var orðin rígfullorðin kona þegar mér lærðist að það er ekki hægt að fara með höfundarrétt að hugmynd. Ég var komin áleiðis í háskólanámi og rak upp stór augu, þegar kennari áfanga skýrði fyrir bekknum að höfundarréttur stofnast ekki fyrr en hugmynd er færð á merkingarbært form. „Ha?“ hváðum við bekkjarfélagarnir í kór. „Ertu þá líka að segja að það sé ekki hægt að stela hugmyndum?“ spurðum við einum rómi og biðum í ofvæni eftir svari kennara. „Nei, hættu nú alveg,“ smellti stafrænn sessunautur minn fram. „Ég fékk einu sinni hugmynd og ég sagði vini mínum frá öllu og hann fór og gaf verkið út og ég gat ekkert gert ...“ Hvað er eiginlega merkingarbært form? Ég hélt áfram í háskólanámi og hef allar götur síðan varðveitt orð kennara, sem svaraði okkur því að höfundarréttur verndar ekki hugmyndir. Áfanginn heitir Hagnýtur höfundarréttur og er kenndur við Háskólann á Bifröst en inntak áfangans kenndi mér láta af eigin hugarórum; að skissa teikninguna, rita uppkastið, hljóðrita laglínuna, taka ljósmyndina eða hvað sem mér dytti til hugar og stíga síðar fram með umræddar skissur til útsetninga, mæta mannleg og uppátækjasöm sem ég nú get verið í endalausum eltingarleik mínum við heilagan fullkomleikann sem ávallt er utan seilingar. Íslensku höfundalögin eru listrænn leiðarvísir Ég skrifa þessi orð með eins einföldum hætti og mér er mögulegt í beinu framhaldi af málþingi um skilgreiningu höfundarréttar á skapandi afurðum gervigreindar sem fór fram í Hörpu þann 29. sept. sl. Vísdómsorð fyrrum kennara míns tóku á sig endurnýjaða mynd og því næst komu mér orðin til hugar, sem má lesa í athugasemdum við frumvarp til íslensku höfundalaga: „ ... andleg sköpun, sem er ný og sjálfstæð, a.m.k. að formi til.“ Ég glugga stundum í frumvarpið sem fylgir með íslensku höfundalögunum á vef Alþingis og þykir mikið til koma, því að mínu mati eru íslensku höfundalögin listrænn leiðarvísir og hagnýt vinnuhandbók allra starfandi innan skapandi greina. Þú þarft ekki að skrá höfundarréttinn Í ríflega fimmtíu ára gömlu frumvarpinu hermir að sá sem skapi andlegt verk á sviði bókmennta eða lista, teljist höfundur þess, en að réttur höfundar yfir verkinu stofnist um leið og hugmyndin sjálf tekur á sig merkingarbært form. Að þeim orðum sögðum hefur áleitinni spurningu síðari tíma verið fundið svar; ekki þarf að skrá frumsamið verk til að stofna til höfundarréttar. Það er frumskissan sem ég orðaði hér að ofan, sem stofnar sjálfkrafa til höfundarréttar. Frumvarpið góða, sú merka túlkun á eðli listsköpunar sem fylgir með höfundalögum nr. 73 og voru lögfest á Alþingi þann 29. maí 1972, segir einnig að „ ... hlutverk og efni höfundalaga sé að veita mönnum [manneskjum] réttarvernd á tilteknum andlegum verðmætum: bókmenntum og listum, en að með lögunum sé viðurkenndur réttur þess sem verkið hefur gert, þ.e. höfundarins, til umráða yfir því, sem ýmist er fjárhagslegs eða persónulegs eðlis.“ Ekki henda skissunum þínum Þó er því svo skemmtilega háttað að andlag þess réttar sem lagaverndin spannar er óáþreifanleg en svo segir í inngangi athugasemda við umrætt frumvarp á bls. 14: „Andlag höfundarréttar, sem lagaverndin er veitt, er ávallt ólíkamlegt, þ. e. hugsmíð sú eða sköpunar starfsemi, sem birtist í bókmenntaverki eða listaverki. Ef aðrir menn en höfundurinn sjálfur eiga að geta notið þess, verður að koma því til vitundar þeirra með einhverjum hætti.“ Í einfölduðu máli eru því skissurnar þínar áþreifanlegur stofn höfundarréttar. Eigi þó aðrir en þú að geta notið skapandi hugsmíðar þinnar, verður þú að koma verkinu á merkingarbæru formi til vitundar þeirra með einhverjum hætti en um slíkt gilda önnur ákvæði sem ég tíunda ekki nánar. Gjöful er gervigreindin Það merka veganesti sem ég stakk í listrænan mal minn að loknu málþingi í Hörpu, er mikilvægi alþjóðlegrar umræðu um nauðsyn þess að skilgreina eðli höfundarréttar með nánari hætti en áður. Mér vitanlega, hefur heimsbyggðinni aldrei verið jafnt annt um stofn höfundarréttar fyrr en einmitt nú. Sú opinbera umræða eykur svo verðmætagildi manngerðar listsköpunar og er sannarlega tilkomin vegna hugleiðinga um rétt til nytja af framleiddum verkum gervigreindar og hvernig eigi að standast samanburð við manngerða hugarsmíði. Löngu tímabærar vangaveltur um eðli listsköpunar Að öllu framansögðu hvet ég listhneigða til að koma eigin hugmyndum á merkingarbært form, að varðveita hverja skissu og byggja á eigin frumgerðum við síðari útsetningu. Ekki sitja á eigin hugmyndum. Skissið teikninguna, ritið uppkastið, syngið laglínuna inn á farsímann, takið ljósmyndina og varðveitið gögnin í vinnumöppu, minnug þess hvernig stofnast til höfundarréttar. Umfaðmið tilvist gervigreindarinnar og fagnið opinberri umræðu sem nú ber hvað hæst um eðli skapandi afurða. Lagaleg þróun á skilgreiningu höfundarréttar skapandi afurða gervigreindar hefur hrundið af stað löngu tímabærum vangaveltum um eðli listsköpunar og lögvarinn einkarétt höfunda til að gera eintök af eigin verkum og gera aðgengileg almenningi í upphaflegri eða breyttri mynd, í þýðingu eða annarri aðlögun. Jákvæðari markaðssetningu á verðmætagildi manngerðrar listsköpunar er vart hægt að biðja um! Höfundur er listunnandi Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Höfundarréttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira