Innlent

Sagðir hafa frelsis­­svipt mann og þrýst klauf­hamri í enda­þarm hans

Árni Sæberg skrifar
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Tveir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir grófa frelsissviptingu og rán í mars í fyrra. Annar þeirra er einnig ákærður fyrir nauðgun með því að hafa þrýst klaufhamri í endaþarmsop fórnarlambsins.

Mennirnir tveir eru sakaðir um að hafa svipt mann frelsi í um fimm klukkustundir að heimili hans og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að ná frá honum verðmætum.

Annar þeirra hafi slegið hann í höfuðið og í kjölfarið hafi þeir í sameiningu bundið hann á höndum og fótum í rúmi hans. Hinn hafi þá lagt hníf að hálsi og enni mannsins og hótað honum lífláti, jafnframt sem hann hafi otað sporjárni að honum og hótað að reka það inn í endaþarm hans og neytt hann þannig til að gefa upp lykilorð að farsíma sínum og heimabanka.

Hótuðu öllu illu

Á meðan hafi félaginn farið ránshendi um heimili fórnarlambsins og safnað saman sjónvarpstæki, leikjatölvu, trommusetti, fartölvu, hátalara, húslyklum og farsíma.

Þá hafi þeir borið munina í sameiningu út í bíl fórnarlambsins, ekið honum á brott og skilið fórnarlamb sitt eftir bundið og með límt fyrir munn með flutningalímbandi.

Við atlöguna hlaut maðurinn um fjögurra sentimetra stórt stjörnulaga sár á hnakka og rispu á enni og í hársverði.

Handtekinn í miðjum rúnti

Annar mannanna var handtekinn síðar sama dag þegar lögregla stöðvaði för hans á Snorrabraut þegar hann rúntaði um á bíl fórnarlambsins. Í bílnum fannst ofangreindur ránsfengur.

Hinn maðurinn var sömuleiðis handtekinn samdægurs. Sá var með farsíma fórnarlambsins í fórum sínum og þá hafði verið búinn að ráðstafa rétt tæplega sjö hundruð þúsund krónum af bankareikningi fórnarlambsins með símanum.

Beitti klaufhamri á endaþarm og typpi

Maðurinn sem er sakaður um að hafa slegið fórnarlambið í höfuðið með flösku sætir ákæru fyrir stórfellda líkamsárás auk ákæru fyrir frelsissvipringu og rán, sem hinn sætir einnig. 

Sá sætir auk þess ákæru fyrir nauðgun og kynferðisbrot, með því að hafa í ofangreint sinn, þar sem maðurinn lá bundinn í rúmi sínu á höndum og fótum, haft við hann önnur kynferðismök en samræði gegn vilja hans, með því að draga buxur og nærbuxur hans niður og þrýsta klaufhamri í endaþarmsop hans og þannig skakað hamrinum fram og til baka og slegið hann tvívegis með hamrinum í getnaðarlim hans og á sama tíma tekið athæfið upp á farsíma hans og hótað honum að setja myndskeiðið í dreifingu á netinu ef hann leitaði til lögreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×