Chelsea ekki í vand­ræðum með ný­liða Luton

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sterling skoraði tvennu.
Sterling skoraði tvennu. Sebastian Frej/Getty Images

Chelsea er komið á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-0 sigur á nýliðum Luton Town.

Þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu var snemma ljóst að heimamenn í Chelsea myndu valda gestum kvöldsins gríðarlegum vandræðum. Raheem Sterling ógnaði sífellt með hraða sínum of krafti en enski landsliðsmaðurinn kom Chelsea yfir á 17. mínútu.

Hann fékk boltann frá Malo Gusto úti á hægri vængnum, lagði af stað í áttina að marki, fór framhjá hverjum leikmani Luton á fætur öðrum áður en hann skoraði með góðu skoti. Það reyndist eina mark fyrri háfleiks.

Gusto fann svo Sterling aftur á 69. mínútu og aftur skilaði enski framherjinn boltanum í netið með góðu skoti. Nicolas Jackson skoraði svo sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni skömmu síðar með góðu skoti, staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur.

Chelsea er í 8. sæti með 4 stig að loknum þremur umferðum en Luton Town er án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira