Tónlist

Scarlett syngur lög Tom Waits

Leikkonan gullfallega Nú á eftir að koma í ljós hvort stelpan, sem er af mörgum talin ein fallegasta kona heims, sé einnig með gullrödd.
Leikkonan gullfallega Nú á eftir að koma í ljós hvort stelpan, sem er af mörgum talin ein fallegasta kona heims, sé einnig með gullrödd. MYND/Getty

Scarlett Johansson hefur skrifað undir plötusamning við Atco, sem er á vegum Rhino Records. Hún dvelst þessa dagana í stúdíói þar sem hún syngur lög Tom Waits, en platan, sem ætti að líta dagsins ljós með vorinu, heitir einmitt Scarlett Sings Tom Waits. Scarlett er eins og allir vita ekki fyrsta Hollywood-daman sem daðrar við frama í söngheiminum.

Paris Hilton sló nýlega í gegn á heimsvísu með söng sínum um blindar stjörnur, en raddbönd þeirra Lindsay Lohan og Hilary Duff hafa líka dugað til að klífa vinsældalista. Scarlett hefur þó löngum þótt skera sig úr röðum ungra Hollywoodkvenna, og neitar til dæmis að svelta sig niður í ásættanlegar fatastærðir. Það kom því mörgum á óvart þegar áform hennar um plötuútgáfu urðu ljós og þóttu einhverjum hún svíkja lit.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Scarlett lætur til sín taka í söngnum, því í vor söng hún lag George Gershwins, Summertime, inn á safnplötuna Unexpected Dreams: Songs from the Stars. Þeir sem til leikkonunnar fallegu þekkja segja þó að hún geti vel haldið lagi og syngi hvíslandi röddu. Tom Waits aðdáendur ættu því ekki að örvænta alveg strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×