Erlent

Gantz hótar að segja af sér vegna ó­sættis við Netanjahú

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Benny Gantz er leiðtogi stjórnarandtöðuflokksins Þjóðareiningarflokksins. 
Benny Gantz er leiðtogi stjórnarandtöðuflokksins Þjóðareiningarflokksins.  EPA

Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, hefur hótað að segja sig úr stríðsráði Ísraels samþykki Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels ekki áætlun um enduruppbyggingu á Gasa að stríði loknu. 

Gantz greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag. Hann hefur að auki hótað að draga stjórnarandstöðuflokk sinn, Þjóðareiningarflokkinn, úr þjóðstjórn Ísraels samþykki forsætisráðherra ekki áætlunina fyrir 8. júní, sem er eftir sléttar þrjár vikur. 

Blaðamannafundurinn var haldinn skömmu eftir að Ísraelsher fann lík fjögurra gísla sem höfðu verið í haldi Hamas frá upphafi stríðsins. Á honum sagðist Gantz krefjast samþykktar sex skrefa áætlunar um hvernig Gasaströndin verði uppbyggð og stjórnað að stríði loknu. Áætlunin fæli í sér tímabundið bandarískt-evrópskt-arabískt-palestínskt kerfi borgaralegrar stjórnsýslu á Gasa meðan Ísrael færi með öryggiseftirlit. 

Yfirlýsing Gantz kemur einnig í kjölfar þess að varnarmálaráðherrann Yoav Gallant kallaði eftir svörum um framtíð Gasa að stríðinu loknu. Hann sagðist ekki myndu styðja lausn þar sem Ísraelsmenn færu með stjórn svæðisins.

Hart sótt að Rafah og Jabalia

Ísraelsher hefur ráðið meira en 35 þúsund Palestínumenn af dögum frá upphafi stríðsins í október samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa. Ísraelsher hefur síðustu vikur sótt hart að norðurhluta Gasa, einkum að borginni Rafah, en búist er við að herinn komi til með að ráðast inn í borgina þvert á vilja Bandaríkjamanna og annarra bandamanna Ísraela.

Sameinuðu þjóðirnar áætla að nærri 800 þúsund Palestínumenn hafi flúið borgina frá því að ísraelski herinn hóf aðgerðir þar þann 6. maí. 

Þá hefur herinn sótt hart að borginni Jabalia, þar sem stærstu flóttamannabúðirnar á Gasa eru staðsettar. Minnst íbúar Jabalia létu lífið í árásum Ísraela í dag og tugir særðust, hefur Reuters eftir heimildum. 

Árásirnar eru hluti af aðgerð Ísraelshers, sem var lýst sem „nákvæmum aðgerðum gegn hryðjuverkamönnum og innviðum“.

„Flugher Ísraels heldur aðgerðum sínum áfram á Gasaströndinni og hefur skotið á meira en sjötíu hryðjuverkaskotmörk síðastliðinn sólarhring, þar á meðal vopnageymslur, innviðasvæði hersins, hryðjuverkamenn sem ógnuðu hermönnum IDF og hernaðarsamstæður,“ segir í yfirlýsingu frá Ísraelsher. Reuters hefur eftir heimildum að tugir Palestínumanna létust eða særðust í árásunum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×