Innlent

Spyr hvort eðli­legt sé að ráð­herrar taki þátt í er­lendum mót­mælum

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Sigmundur spurði Bjarna Benediktsson forsætisráðherra í dag hvort eðlilegt væri að ráðherrar landsins taki þátt í mótmælum erlendis.
Sigmundur spurði Bjarna Benediktsson forsætisráðherra í dag hvort eðlilegt væri að ráðherrar landsins taki þátt í mótmælum erlendis. Vísir/Vilhelm

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði forsætisráðherra að því hvort það hafi verið með vilja og vitund ríkisstjórnarinnar, að utanríkisráðherra hafi farið til Georgíu og tekið þátt í mótmælum. Bjarni sagði Ísland og aðrar þjóðir sem þarna væru ekki taka afstöðu gegn þarlendum stjórnvöldum.

Umfangsmikil mótmæli brutust út þegar umdeild fjölmiðlalög voru samþykkt í Georgíu í fyrradag.

Þórdís Kolbrún Reykjförð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna, þar sem hún fundaði með stjórnvöldum, stjórnarandstöðunni og frjálsum félagssamtökum. Heimsóknin kemur í kjölfar sameiginlegrar yfirlýsingar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á föstudag þar sem þau vöruðu við því að nýju lögin í Georgíu stríddu gegn evrópskum gildum og reglum.

Georgía hefur stöðu mögulegs umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu, en „rússnesku lögin“ sem samþykkt voru vekja upp alvarlegar spurningar um hvert landið stefnir, að mati utanríkisráðuneytisins.

Sigmundur Davíð spurði Bjarna Benediktsson í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag hvort það hefði verið með vilja og vitund ríkisstjórnarinnar, að utanríkisráðherra hefði tekið þátt í mótmælum þar í landi, og þar með lýst afstöðu ríkisstjórnar Íslands. Hann spyr hvort „þetta sé eitthvað sem við getum átt von á, að ráðherrar landsins taki þátt í mótmælum í öðrum löndum?“

Taki ekki afstöðu gegn stjórnvöldum

Bjarni svaraði því að Þórdís væri að taka þátt í sameiginlegri ferð Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, sem að oft komi saman. Þetta eigi rætur sínar að rekja til samstarfs þeirra ríkja. Þau séu ekki að taka afstöðu gegn stjórnvöldum heldur meira að kynna sér ástandið og hlýða á þau sjónarmið sem að eru uppi. „En það eru uppi áhyggjur af því að gildi á borð við öflugt lýðræði og frjálsa fjölmiðlun, séu að verða undir í því samfélagi fyrir áhrif erlendra afla,“ sagði Bjarni


Tengdar fréttir

„Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu

Georgíska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp í anda rússneskra laga sem hafa verið notuð til þess að bæla niður andóf og þagga niður í fjölmiðlum. Þúsundir manna mótmæltu frumvarpinu við þinghúsið á meðan atkvæðagreiðsla fór fram.

Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn

Gífurlega umfangsmikil mótmæli fóru fram í Tíblisi í Georgíu í gær. Þar hafa fjöldi mótmælenda komið saman á undanförnum vikum vegna umdeildra laga sem yfirvöld vinna að. Mótmælin virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi.

Þór­dís í sendi­nefnd til Georgíu vegna um­deildra laga

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, lýsir áhyggjum af því að nýsamþykkt lög um félagasamtök og fjölmiðla í Georgíu hafi neikvæð áhrif á stöðu landsins í hinum frjálsa heimi. Hún er stödd í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×