Sport

Dag­skráin í dag: Úr­slitin hefjast í Subway-deild kvenna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Keflvíkingar taka á móti nágrönnum sínum í Njarðvík í fyrsta leik liðanna í úrslitum Subway-deildar kvenna í kvöld.
Keflvíkingar taka á móti nágrönnum sínum í Njarðvík í fyrsta leik liðanna í úrslitum Subway-deildar kvenna í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á átta beinar útsendingar á þessum fína miðvikudegi. Þar ber hæst að nefna fyrstu viðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta.

Stöð 2 Sport

Keflavík tekur á móti Njarðvík í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 19:30 og að leik loknum verða sérfræðingar Körfuboltakvölds á svæðinu til að gera leikinn upp.

Stöð 2 Sport 2

Unicaja og Manresa mætast í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í beinni útsendingu klukkan 18:20.

Stöð 2 Sport 3

Mizuho Americas Open á LPGA-mótaröðinni í golfi hefst klukkan 19:00.

Stöð 2 Sport 4

PGA Meistaramótið í golfi, PGA Championship, rúllar af stað á Stöð 2 Sport 4 klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 4.

Vodafone Sport

Kiel og Rhein-Neckar Löwen eigast við í þýska handboltanum klukkan 16:55 áður en Leeds tekur á móti Norwich í seinni undanúrslitaviðureign liðanna um sæti í ensku úrvalsdeildinni klukkan 18:55.

Klukkan 23:00 er svo komið að viðureign Rays og Red Sox í NHL-deildinni í íshokkí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×