Innlent

Koma á fót framkvæmdanefnd um mál­efni Grinda­víkur

Árni Sæberg skrifar
Alþingi samþykkti frumvarp Svandísar í dag.
Alþingi samþykkti frumvarp Svandísar í dag. Vísir/Vilhelm

Alþingi samþykkti í dag lagafrumvarp innviðaráðherra um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar. Framkvæmdanefndin tekur formlega til starfa 1. júní næstkomandi þegar lögin taka gildi. Undirbúningur að starfi nefndarinnar er þegar hafinn og skipan hennar verður kynnt innan skamms.

Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að framkvæmdanefndin muni fara með stjórn, skipulagningu og samhæfingu aðgerða, tryggja skilvirka samvinnu við sveitarstjórn og opinbera aðila og hafa heildaryfirsýn yfir málefnum Grindavíkurbæjar. 

Verkefnið hafi verið undirbúið í góðu samstarfi við bæjarstjórn Grindavíkur, sem hafi óskað eftir samstarfi um tilhögun og stjórnarfyrirkomulag verkefna við óvenjulegar aðstæður vegna jarðhræringa í Grindavík.

Þýðingarmikið skref

„Það er mikils vert að Alþingi hafi nú samþykkt lög um stofnun framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur. Með þessum hætti er aðkoma ríkisins gerð skýrari en verið hefur þannig að aukinn árangur náist. Þetta er þýðingarmikið skref í viðleitni okkar að hlúa að íbúum Grindavíkurbæjar og styðja við samfélagið og íbúa Grindavíkur til framtíðar,“ er haft eftir Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra.

Starfrækir þjónustuteymi á sviði velferðar- og skólaþjónustu

Í tilkynningu segir að framkvæmdanefnd sé fjölskipað og sjálfstætt stjórnvald sem hafi með höndum fjölþætt verkefni sem snúa að úrlausnarefnum sem tengjast jarðhræringunum við Grindavík. Helstu verkefni nefndarinnar muni snúa að samfélagsþjónustu, með því að starfrækja þjónustuteymi á sviði velferðar- og skólaþjónustu og framkvæmdum og viðgerðum á mikilvægum innviðum í Grindavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×