Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2024 15:12 Það var fullt af auglýsingum á gólfinu í Smáranum en nú er búið að taka þær allar í burtu fyrir utan þessa sem er i miðjuhringnum. Vísir/Óttar Auglýsingar á gólfi íþróttahússins í Smáranum hafa verið teknar í burtu eftir slysið sem varð í síðasta leik í húsinu.
Remy Martin spilar ekki meira með Keflvíkingum í úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta eftir að hafa rifið hásin í fyrsta undanúrslitaleiknum á móti Grindavík. Martin virtist renna á auglýsingu á gólfinu í Smáranum þegar hann meiddist. Martin fór á kostum með bikarmeisturum Keflavíkur í vetur en meiðsli eins og hann glímir nú við geti orðið til þess að ferlinum hans ljúki. Vonandi tekst honum að koma til baka. Hér fyrir neðan má sjá atvikið þegar Martin meiðist. Stjórn ÍTK, Íslensks toppkörfubolta, sendi frá sér yfirlýsingu í framhaldinu þar sem kallað var eftir því að auglýsingar á gólfum körfuboltavalla verði bannaðar þar sem þær geta valdið alvarlegum slysum. Auglýsingar eins og þessi eru límdar á gólf flestra íþróttahúsa landsins og hafa verið til staðar í áraraðir. Þær geta hins vegar skapað hættu fyrir leikmenn vegna þess að þær safna upp ryki hraðar en hinn almenni gólfflötur. Nýjustu fréttir frá Smáranum eru að það er nú búið að fjarlægja allar þessar auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum. Nú eru allar auglýsingarnar farnar fyrir utan auglýsinguna í miðjuhringnum. Næsti leikur í einvígi Grindavíkur og Keflavíkur fer einmitt fram í Smáranum á miðvikudagskvöldið kemur en staðan í einvíginu er 1-1 eftir að Keflvíkingar jöfnuðu metin á heimavelli sínum í gær. Þriðji leikur Grindavíkur og Keflavíkur fer fram á þessu gólfi á miðvikudagskvöldið.Vísir/Óttar
Subway-deild karla UMF Grindavík Keflavík ÍF Mest lesið Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Ógnaði lögreglu með öxi stuttu frá stuðningsmannasvæði Hollendinga Fótbolti Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Fótbolti Í beinni: Pólland-Holland | D-auðariðillinn hefst Fótbolti Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Neituðu launahækkun til að tryggja kvennalandsliðinu sömu laun Fótbolti Segir England ekki eiga möguleika með Trent á miðjunni Fótbolti Fleiri fréttir Þorleifur áfram með Grindavík Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Celtics vilja sjá Horford hampa titlinum: „Þetta snýst um meira en bara mig“ Landsliðsmaður snýr heim úr atvinnumennsku og semur við Stjörnuna Alba Berlin tapaði úrslitaeinvíginu án Martins Hulda verður áfram hjá Grindavík Ho You Fat í Hauka Þorvaldur Orri kemur aftur til KR Luka ósáttur með dómgæsluna: „Aldrei komið fyrir mig áður“ Spurðu hvort Friðrik vildi ekki frekar bíða eftir starfi hjá karlaliði Boston með níu fingur á titlinum Körfuboltagoðsögnin Jerry West er látin Segist tilbúinn að deyja á vellinum en fær líklega ekki að spila Badmus fer hvergi WNBA-deildin að slá öll met Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Aftur til Milwaukee eftir brottreksturinn frá Lakers Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“ Kyrie Irving leyfir Luka Doncic ekki að axla ábyrgð á tapinu Mavericks dauðmóðir og Celtics taka tveggja leikja forystu Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka Elvar Már áfram í Grikklandi en fer í nýtt félag Friðrik tekur við keflinu í Keflavík Jóhann Árni til Hattar Grindvíkingar sækja Bandaríkjamann norður og Mortensen framlengir Boston tók forystuna í úrslitunum með öruggum sigri Porzingis klár í kvöld og spenntur fyrir úrslitaeinvígi gegn gömlu félögunum Martin ekki meira með á tímabilinu en Alba Berlin komst í úrslit Valur byrjað að styrkja sig fyrir næstu leiktíð Sjá meira