Innlent

Frétta­skýring Maríu Sig­rúnar kemur út á mánu­dag

Jakob Bjarnar skrifar
Baldvin Þór Bergsson ritstjóri Kastljóss og María Sigrún. En hún fær pláss hjá honum fyrir fréttaskýringu sína um bensínstöðvar og lóðir sem þeim tengjast.
Baldvin Þór Bergsson ritstjóri Kastljóss og María Sigrún. En hún fær pláss hjá honum fyrir fréttaskýringu sína um bensínstöðvar og lóðir sem þeim tengjast. vísir

María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á RÚV segir að fréttaskýringin sem hún fékk ekki birta í Kveik, muni koma fyrir sjónir áhorfenda á mánudagskvöld.

„Það gleður mig að fréttaskýring sem ég hef unnið að síðustu mánuði verður sýnd í Kastljósi á mánudag kl. 19:40 í þeirri lengd sem til stóð að hún yrði í Kveiksþætti 23. apríl síðastliðinn,“ segir María Sigrún.

Samkvæmt skjáskotum sem hún birtir með færslu sinni er víst að þar verður fjallað um bensínstöðvar og umdeildar lóðaúthlutanir Reykjavíkurborgar til þeirra sem hafa haft með þær að gera.

Frétt sem Vísir birti fyrir skömmu vakti gríðarmikla athygli og umræður í kjölfarið en María Sigrún greindi frá því í samtali við Vísi að hún hefði verið látin víkja úr Kveik, gegn sínum vilja.

Ritstjóri Kveiks mun hafa látið þau ummæli flakka, að sögn Maríu Sigrúnar, að hún væri kannski ekki gerð fyrir rannsóknarblaðamennsku en hún væri frábær fréttalesari. Hafa þau ummæli þótt af mörgum vera til marks um stæka karlrembu og hefur komið fram hávær krafa þess efnis að almenningur ætti í það minnsta kröfu á að vita hvað það væri sem María Sigrún ætlaði að fjalla um. Það liggur nú fyrir.

María Sigrún greindi jafnframt frá því að hún bindi vonir við að fréttaskýring hennar yrði sýnd í Kastljósi og nú er sú staðan. Eftir því sem Vísir kemst næst mun Urður Örlygsdóttir fréttamaður ganga til liðs við Kveiksteymið í hennar stað.

Uppfært 15:15

Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins sagði engin annarleg sjónarmið hafa búið að baki því að innslag sem átti að sýna í fréttaskýringarþættinum Kveik síðasta þriðjudag hafi verið tekið af dagskrá. Gerði hann grein fyrir þeim sjónarmiðum á Facebook-síðu sinni. Fréttaskýringin hafi ekki verið fullbúin til sýninga fyrir síðasta Kveiksþátt þennan veturinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×