Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Bjarki Sigurðsson skrifar 17. apríl 2024 16:16 Sigríður Örvarsdóttir er nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri. Akureyrarbær Sigríður Örvarsdóttir hefur verið ráðin safnstjóri Listasafnins á Akureyri. Fjórtán sóttu um starfið en Sigríður tekur við af Hlyni Hallssyni.
Sigríður er með MA-gráðu í safnafræði frá Háskóla Íslands, BA-gráðu í textílhönnun frá Seminaret for Kunst og Haandværk í Danmörku og hefur lokið meistaranámi í prjónahönnun frá Academie Royale des Beux-Arts í Brussel. Þá er hún með kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskóla og með viðbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfræði. Sigríður hefur starfað sem safnstjóri og forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá árinu 2022 og veitir sem slík forstöðu Myndlistarsafni Þingeyinga en safneign þess telur um 1.900 verk. Sigríður starfaði sem verkefnastjóri sýninga hjá Akureyrarbæ sumarið 2021. Í því starfi sinnti hún sýningagerð, rannsóknarvinnu og kynningarmálum. Árin 2019 til 2020 var hún sjálfstætt starfandi ráðgjafi við gerð safnastefnu Akureyrarbæjar. Hún gegndi starfi safnafulltrúa Listasafnsins á Akureyri árið 2012 og árin 2010 og 2012 starfaði hún sem verkefnastjóri samsýninga og ritstjóri safnahandbóka fyrir söfn á Norður- og Norðausturlandi. Árin 2008 til 2012 starfaði hún sem safnkennari við Minjasafnið á Akureyri.
Akureyri Söfn Menning Vistaskipti Mest lesið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Tíu ráð Höllu fyrir börn sín og þín til bjargar framtíðinni Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Fleiri fréttir Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira