Innlent

Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykja­nes­braut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bíllinn nálgast bíl Ingibjargar og brunar fram úr henni.
Bíllinn nálgast bíl Ingibjargar og brunar fram úr henni.

Ökumaður skapaði mikla hættu á Reykjanesbrautinni í hádeginu á mánudaginn þegar hann skautaði á milli bíla á hraðferð í átt að höfuðborgarsvæðinu. Myndband náðist af ofsaakstrinum.

Ingibjörg Haraldsdóttir var á leið frá Reykjanesbæ til höfuðborgarsvæðisins þegar fólksbíll kom á blússandi ferð fram úr henni. Þetta er á því svæði þar sem Reykjanesbrautin verður einbreið og álverið í Straumsvík í augsýn.

„Ég lenti í árekstri við svipaðar aðstæður um jólin fyrir einu og hálfu ári, þá á leiðinni suður. Þess vegna var ég svo reið yfir þessu,“ segir Ingibjörg.

Vísir hafði samband við Ingibjörgu í desember 2022 sem lýsti því hvernig ekið var á afturhlið bíls þeirra og stungið af. Hún var á leið heim með eiginmanni sínum og tveimur börnum í Reykjanesbæ þegar bíll kom á mikilli siglingu vinstra megin við þau.

Þetta var á svo til sama stað og nú nema hún á leiðinni suður. Ökumaðurinn stakk af og hefur ekkert sést til hans síðan. Hún segir lögregluna í Hafnarfirði ekki hafa sýnt mikinn áhuga á að rannsaka málið þrátt fyrir ábendingu sem hafi borist.

Í framhaldi af árekstrinum í desember 2022 fór Ingibjörg og keypti sér myndavél í bílinn.

„Ég mæli með því að allir séu með myndavél í bílnum sínum,“ segir Ingibjörg. Á myndbandi af ofsaakstrinum á mánudaginn sést bíllinn fara fram úr Ingibjörgu og í framhaldinu skauta fram hjá fleiri bílum.

Ökumaðurinn keyrir utan vegar, hægra megin við bílinn, þegar honum sýnist og segir Ingibjörg að hann hafi að lokum horfið á leifturhraða í átt til Hafnarfjarðar.

Hún segist bíða eftir því að Reykjanesbrautin verði tvöfölduð þarna eins og hún er nú orðin að stærstum hluta. Þá biðlar hún til fólks að fara varlega.

„Flýta sér hægt. Hvað ætli hann hafi grætt á þessu?“ segir Ingibjörg og veltir fyrir sér sekúndurnar sem ökuþór sem hegði sér svona græði á endanum. Maðurinn hennar keyrir brautina á hverjum degi og verði reglulega vitni að hegðun á borð við þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×