Innlent

Öxna­dals­heiði verður ekki opnuð í dag

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Öxnadalsheiði til austurs klukkan 14:40 í dag.
Öxnadalsheiði til austurs klukkan 14:40 í dag. Vegagerðin

Vegurinn yfir Öxnadalsheiði verður ekki opnaður í dag. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni nú á þriðja tímanum. Þar segir að staðan á veginum verði aftur tekin í fyrramálið.

Fyrr í dag sagði samskiptastjóri Vegagerðarinnar í samtali við fréttastofu að illfært væri um Siglufjarðarveg, sem væri hin leiðin til höfuðborgarinnar frá Norðausturlandi.

Vegurinn væri þó opinn, en óvanir ökumenn eða þeir sem aka á illa búnum bílum mættu eiga von á því að lenda í vandræðum og ættu að íhuga að bíða af sér veðrið frekar en að halda af stað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×