Innlent

Ó­­á­­nægður með við­bragðs­­leysi vegna lög­brota flug­fé­laganna

Bjarki Sigurðsson skrifar
Úlfar Lúðvíksson er lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Úlfar Lúðvíksson er lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Vísir/Sigurjón

Tíu flugfélög afhenda ekki íslenskum yfirvöldum farþegalista við komuna hingað til lands frá Schengen-löndum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir listana mikilvæga fyrir lögregluna en dæmi eru um að erlendir brotamenn komist hingað til lands með þessum hætti. 

Í morgun var greint frá því í Morgunblaðinu að tíu erlend flugfélög skiluðu ekki farþegalistum til yfirvalda við komu til Íslands frá Schengen-löndum, líkt og lög kveða á um að gera skal. Án farþegalista er það happ og glapp hvort erlendir brotamenn komist til landsins eða verði stöðvaðir. Meðal þeirra flugfélaga sem ekki senda lista eru stór félög á borð við Lufthansa og Air Baltic.

Íslensk lög skýr

Úlfar Lúðvíksson, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þetta vera langtímavandamál.

„Íslensk lög eru alveg skýr hvað þetta varðar. Flugfélögum sem koma hingað til lands ber skylda samkvæmt íslenskum lögum að afhenda þessar upplýsingar en í einhverjum tilfellum komast upp með að gera það ekki og ég er óánægður með þá stöðu,“ segir Úlfar. 

Samgönguyfirvöld ekki brugðist við

Stjórnvöldum er heimilt að bæði leggja stjórnvaldssektir á félögin, sem og svipta þau lendingarleyfi. Það er þó undir samgönguyfirvöldum komið sem hafa að sögn Úlfars ekki brugðist við því hingað til.

„Þetta eru grundvallarupplýsingar sem lögregla og tollur þurfa að hafa við landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen. Við þurfum að geta farið kerfisbundið yfir upplýsingar um farþega flugvéla í okkar eftirliti því hefðbundið eftirlit á sér ekki stað á innri landamærum Schengen. Vegabréfaeftirlit er einungis með skipulögðum hætti á ytri landamærum Schengen. Þannig þetta eru í raun og veru grundvallarupplýsingar í okkar löggæslustörfum,“ segir Úlfar. 

Getuleysi á ferðinni

Hann segir að dæmi séu um að einstaklingar sem ekki mega koma hingað til lands komist hingað með þessum hætti.

Finnur þú fyrir því að það sé ekki vilji til þess að bregðast við?

„Ég er ekki að segja að það skorti vilja en það er alveg bersýnilega eitthvað getuleysi á ferðinni,“ segir Úlfar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×