Innlent

Ætla að gefa Hvamms­virkjun grænt ljós

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Fyrirhugað er að Þjórsá verði stífluð á móts við bæinn Hvamm undir Skarðsfjalli í Landsveit.
Fyrirhugað er að Þjórsá verði stífluð á móts við bæinn Hvamm undir Skarðsfjalli í Landsveit. Landsvirkjun

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um að heimila breytingar á vatnshloti í Þjórsá 1, vegna framkvæmda við 95 megavatta Hvammsvirkjun. Telur stofnunin að sjónarmið um raforkuöryggi vegi þyngra en umhverfissjónarmið vatnshlotsins. 

Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar, þar sem vísar er í ítarleg áform um að veita leyfið, með rökstuðningi. Þar segir að það sé mat stofnunarinnar að fyrir liggi ítarleg greining og staðfesting á því að til að tryggja raforkuöryggi á Íslandi sé þörf á aukinni raforkuframleiðslu að því marki sem Hvammsvirkjun sé ætlað að framleiða. 

Tilgangur virkjunarinnar, að tryggja raforkuöryggi, varði almannahagsmuni og vegi þyngra en ávinningur af því að umhverfismarkmið um vatnshlotið náist. 

Þá vísar Orkustofnun til þeirrar ákvörðunar að setja Hvammsvirkjun í orkunýtingarflokk, og telur að fyrir liggi ákvörðun löggjafans um mat á þjóðhagslegri hagkvæmni virkjunarinnar.

Framkvæmdir gætu hafist í vor

Á vef Landsvirkjunar segir að endanleg niðurstaða áformanna verði tilkynnt að loknum athugasemdafresti, sem er til 17. janúar 2024.

„Verði heimildin veitt, hefur Orkustofnun umfjöllun um umsókn Landsvirkjunar um virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun að nýju. Stofnuninni ber að taka ákvörðun um útgáfu virkjunarleyfis innan tveggja mánaða frá því öll gögn hafa borist stofnuninni.

Verði virkjunarleyfið veitt geta sveitarfélögin tvö, Rangárþing ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppur gefið út framkvæmdaleyfi. Gangi allt eftir gætu undirbúningsframkvæmdir fyrir Hvammsvirkjun hafist í vor.“

Í sumar var ákvörðun Orkustofnunar um að veita Landsvirkjun virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun felld úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×