Viðskipti erlent

Segja nýja sænska raf­hlöðu byltingar­kennda

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Forsvarsmenn fyrirtækisins segja hina nýju rafhlöðu geta skipt sköpum.
Forsvarsmenn fyrirtækisins segja hina nýju rafhlöðu geta skipt sköpum. Vísir/Getty

Forsvarsmenn eina framleiðanda rafhlaðna í Evrópu, sænska fyrirtækisins Northvolt, segjast hafa fundið upp nýja tegund rafhlöðu sem í framtíðinni geti meðal annars nýst í framleiðslu á rafbílum.

Í umfjöllun Guardian er því slegið upp að uppgötvunin gæti gert evrópskum bílaframleiðendum kleyft að reiða sig í minna mæli á rafhlöðuframleiðslu í Kína. Forsvarsmenn sænska fyrirtækisins segja um tímamótauppgötvun að ræða.

Nýja rafhlaðan sé af natríumgerð, kosti minna í framleiðslu, sé sjálfbærari og innihaldi ekki lithíum, nikkel, grafít né kóbolt. Fullyrða þeir að rafhlaðan sé fyrsta sinnar tegundar þar sem engar hrámálmar séu nýttir til framleiðslunnar.

Fram kemur í frétt miðilsins að orkuiðnaður í Evrópu sé afar háður slíkum málmum sem aðallega séu unnir í Kína og öðrum löndum Asíu. Northvolt hefur unnið frumútgáfu af rafhlöðunni sem hugsuð er fyrir raforkuver en segir hægt að nýta hana í framtíðinni fyrir bíla og önnur farartæki líkt og rafhlaupahjól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×