Viðskipti erlent

Rússar sölsa undir sig dóttur­fyrir­tæki Carls­berg og Danone

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Baltika Breweries framleiðir og selur bjór í Rússlandi undir merkjunum Carlsberg, Tuborg, Kronenbourg og Holsten.
Baltika Breweries framleiðir og selur bjór í Rússlandi undir merkjunum Carlsberg, Tuborg, Kronenbourg og Holsten. AP/SOPA/LightRocket/Alexander Sayganov

Stjórnvöld í Rússlandi hafa gert eignarnám í dótturfyrirtækjum bjórframleiðandans Carlsberg og jógúrtframleiðandanum Danone. Vladimir Pútín Rússlandsforseti undirritaði umrædda tilskipun, sem hefur fært félög fyrirtækjanna í Rússlandi undir eignaumsjónastofnunina Rosimushchestvo.

Bæði hið danska Carlsberg og hið franska Danone voru í viðræðum við aðila um kaup á einingum félaganna í Rússlandi, Baltika Breweries og Danone Russia.

Talsmenn Danone segja athugun í gangi hvað varðar yfirlýsingu yfirvalda í Rússlandi og að allra leiða verði leitað til að tryggja eignarrétt fyrirtækisins á Danone Russia. Talsmenn Carlsberg segja engar upplýsingar hafa borist um yfirtökuna en ef rétt reynist sé yfirvofandi sala á Baltika Breweries í uppnámi.

Pútín undirritaði tilskipun í apríl síðastliðnum sem gaf yfirvöldum heimild til að gera eignir erlendra aðila upptækar. Um er að ræða svar við refsiaðgerðum bandamanna Úkraínu, sem Rússar segja „óvinveittar og ólöglegar“.

Í sama mánuði var tilkynnt að dótturfélög tveggja orkufélaga, hins þýska Uniper og hins finnska Fortum, hefðu verið teknar eignarnámi.

Danone Russia er stærsta mjólkurvöruframleiðslufyrirtæki Rússlands en hjá því starfa um 8.000 starfsmenn. Enn fleiri starfa hjá Baltika Breweries, 8.400 manns, á átta starfsstöðvum.

Sagt er að um „tímabundna“ ráðstöfun sé að ræða en ekkert hefur verið gefið upp um hvert eignirnar eiga að rata að loknu hinu tímabundna tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×