Opel býður fyrirtækjum einfalda orkuskiptalausn í fimm þrepum Brimborg 3. júlí 2023 09:07 Sífellt fleiri fyrirtæki á Íslandi skipta yfir í rafsendibíla. Opel rafsendibílar eru vinsælastir rafknúinna sendibíla á Íslandi í dag með 33,2% hlutdeild af rafsendibílamarkaði og hefur sala Opel rafsendibíla næstum sjöfaldast miðað við sama tíma fyrir ári.
Ástæðan er sú að sífellt fleiri fyrirtæki skipta í rafmagns atvinnubíla vegna mikils ávinnings og leysa orkuskiptin með heildarlausn Brimborgar og Opel. Fimm þrepa Orkuskiptalausn Brimborgar Nú býður Brimborg ásamt Opel öllum fyrirtækjum, stórum sem smáum, heildstæða ráðgjöf í orkuskiptum bílaflota í fimm þrepum sem einfaldar ákvarðanatöku. Rafknúnir atvinnubílar í prufuafnot í 3 daga til að meta aksturs- og hleðsluþörf. Ráðgjöf um kaup hleðslustöðva, hönnun, uppsetningu og aðgangsstýringu. Tilboð í kaup og fjármögnun hleðslustöðva og kaup eða langtímaleigu bíla. Innifaldar þjónustuskoðanir til fjögurra ára eða að 80.000 km skv. þjónustuferli Opel. 7 ára ábyrgð á bílum og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu. Það er að mörgu að hyggja þegar fyrirtæki velja hleðslulausnir. Brimborg býður upp á hleðslulausnir af öllum toga, hefðbundnar vegghleðslustöðvar, hraðhleðslustöðvar og lausnir heim til starfsfólks. Orkuskiptalausn Brimborgar auðveldar orkuskipti fyrirtækja Þegar fyrirtæki ákveða að orkuskipta bílaflotanum er að mörgu að hyggja. Hver er rétti bíllinn og dagleg akstursþörf hvers ökutækis í flota fyrirtækisins? Dugar að hlaða yfir nótt eða þarf að skjóta hleðslu inn á bílana t.d. í hádegishléi? Hversu margar hleðslustöðvar þarf á starfsstöðvar fyrirtækisins og þarf jafnvel að koma upp hleðslustöðvum við heimili starfsmanna? Eru minni AC hleðslustöðvar nægjanlegar eða þarf að setja upp DC hraðhleðslu á starfsstöð? Á að bjóða viðskiptavinum fyrirtækisins aðgang að hleðslustöðvunum gegn gjaldi og jafnvel almenningi? Til þess að mæta þessari þörf um ráðgjöf og faglega þekkingu til orkuskipta hjá fyrirtækjum hafa Opel og Brimborg þróað Orkuskiptalausn Brimborgar. Um er að ræða nýja þjónustuleið fimm þrepa heildarlausn fyrir fyrirtæki. Lausnin felst í þriggja daga prufuakstri rafbíla, tilboði í kaup með fjögurra ára þjónustu eða að 80.000 km skv. þjónustuferli Opel, áhyggjulaus rekstur með lengri ábyrgð eða langtímaleigu, ráðgjöf við kaup hleðslustöðva, hönnun, uppsetningu, aðgangsstýringu og rekstur. Brimborg er ekki einungis bílaumboð í fararbroddi í sölu rafknúinna ökutækja af öllum stærðum og gerðum heldur einnig rafmagnssali og rekstraraðili hraðhleðslustöðva sem eru opnar öllum rafbílanotendum. Umboðið hefur þegar sett upp vel á fjórða tug minni AC hleðslustöðva á starfsstöðvum sínum en einnig opnað DC hraðhleðslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu við Jafnasel, Hádegismóa og Bíldshöfða í Reykjavík og opnar í sumar öflugustu hraðhleðslustöð landsins í Reykjanesbæ. Þannig hefur Brimborg byggt upp sérfræðiþekkingu á sviði hleðslulausna fyrir rafbíla til þess meðal annars að miðla þeirri þekkingu áfram til sinna viðskiptavina. Ávinningur af orkuskiptum bílaflota fyrirtækja í rafmagn Ávinningur fyrirtækja af því að orkuskipta bílaflotanum í rafmagn er fjölþættur og má annars vegar skipta upp í beinan ávinning í rekstri fyrirtækisins vegna hagkvæmari reksturs bílaflotans og hins vegar í samfélagslegan ávinning. Beinn ávinningur fyrirtækis af orkuskiptum Með hleðslu á starfsstöð sparast tími og orkuverð er lægra og stöðugra sem lækkar rekstrarkostnað. Orkunýtni rafbíla er einstök vegna hagkvæmni rafmagnsmótora. Nýting rafbíla í flotanum er betri bæði vegna þess að árlegur þjónustutími er styttri og einnig því hægt er að nýta bílana betur í þéttbýli kvölds og morgna vegna minni mengunar og hávaða. Vinnuumhverfi fyrir bílstjóra er betra vegna minni hávaða og titrings. Koltvísýringslosun frá fyrirtækinu minnkar og enginn mengun stafar frá bílunum vegna jarðefnaeldsneytis eða smurolíu sem hjálpar sjálfbærnimarkmiðum fyrirtækisins. Neytendur og önnur fyrirtæki velja það í auknum mæli að eiga viðskipti við fyrirtæki sem leggja sitt af mörkum til umhverfismála og vel merktur rafbíll eru einstaklega jákvæð skilaboð til samfélagsins. Samfélagslegur ávinningur af orkuskiptum Ísland færist nær því að ná markmiðum sínum um samdrátt í koltvísýringslosun. Loftgæði verða betri vegna minni sót- og NOx mengunar. Orkuöryggi og orkusjálfstæði allra Íslendinga styrkist. Nýtni raforku á Íslandi og dreifikerfis raforku batnar. Ímynd Íslands sem land endurnýjanlegrar orku og hreins lofts styrkist. Rafsendibílarnir frá Opel bjóða upp á sveigjanlega og góða vinnuaðstöðu. Með hinu einfalda og snjalla FlexCargo® flutningskerfi er t.d. unnt að lyfta farþegasætinu og opna lúgu á farangursþilinu. Opel er þýskt, hágæða, bílamerki sem vert er að kynna sér! Opel sendibílarnir státa af þýskum gæðum sem eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni, framúrskarandi drægni og miklum hleðsluhraða. Mikil orkunýtni, lágur rekstrarkostnaður, fyrirtaks vinnuaðstaða með góðu aðgengi, hámarks nýting, ríkulegur búnaður, fjölmargar stærðarútfærslur og margir aðrir eiginleikar tryggja vinsældir Opel rafsendibíla. Við hvetjum öll fyrirtæki í orkuskiptahugleiðingum að kynna sér Orkuskiptalausn Opel og Brimborgar. Starfsmenn Brimborgar koma á staðinn og veita ráðgjöf um rafbíla og hleðslulausnir miðaðar að innviðum og þörfum fyrirtækja þeim að kostnaðarlausu. Fyrirtæki geta pantað ráðgjöf vegna Orkuskiptalausnarinnar á vefsíðu Opel undir fyrirtækjalausnir.
Orkuskipti Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira