Viðskipti innlent

Fer frá Directive Games til Porcelain Fortress

Atli Ísleifsson skrifar
Þorgeir Frímann Óðinsson er formaður IGI, Samtaka leikjaframleiðenda.
Þorgeir Frímann Óðinsson er formaður IGI, Samtaka leikjaframleiðenda. Aðsend

Þorgeir Frímann Óðinsson, formaður IGI, Samtaka leikjaframleiðenda, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Porcelain Fortress. Hann hefur stýrt Directive Games North frá árinu 2019.

Í tilkynningu segir að starfsemi Directive Games hafi vaxið mikið á tímabilinu og hafi skrifstofan í Reykjavík orðið langstærsta starfstöð Directive Games á heimsvísu. Auk þess er Directive Games með skrifstofur í Sjanghæ, Los Angeles og Singapúr. 

„Þorgeir bar þar ábyrgð á fjármálum, rekstri og mannauðsmálum ásamt því að koma að verkefnastjórnun og vera hluti af alþjóðlegu viðskiptaþróunarteymi fyrirtækisins. Samhliða störfum sínum hjá Directive Games hefur Þorgeir verið formaður IGI, Samtaka leikjaframleiðenda, setið í Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins og stjórn samnorrænu leikjastofnunarinnar Nordic Game Institute. Þorgeir mun halda áfram sem formaður IGI.

Porcelain Fortress er stofnað um mitt ár 2017 og kom fyrstu útgáfu af vöru sinni, No Time to Relax á markað 2018. Á síðustu hefur leikurinn verið gefin út fyrir PC, Xbox, Playstation og Nintendo Switch. Varan seldist langt fram úr væntingum og hefur selst meðal annars í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Kína og Tailandi, en Porcelain Fortress stefnir nú að því að byggja nýja og betri vöru byggða á þeirri góðu reynslu sem hefur myndast innan fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×