Lífið

Eurovision: Páll Óskar spáir Heru í reipitog um fyrsta sætið

Páll Óskar spáir því að keppnin verði hrikalega spennandi fyrir Íslendinga.
Páll Óskar spáir því að keppnin verði hrikalega spennandi fyrir Íslendinga.

Fyrrum Eurovision-farinn Páll Óskar Hjálmtýsson er hafsjór af fróðleik um keppnina. Hann hefur kynnt sér þátttakendur í ár í þaula eins og kom fram í frábæru þáttunum Alla leið.

Það er því góðs viti að fá bjartsýna spá frá Palla fyrir laugardagskvöldið en hann spáir Heru Björk í eitt af efstu fimm sætunum.

Hann telur jafnvel möguleika á því að Hera vinni keppnina. „Ég skal lofa þér því, Íslendingar eiga eftir að upplifa annað móment eins og þegar Selma Björns keppti 1999. Hún verður í fyrsta sæti á tímabili. Þetta verður síðan reipitog milli hennar og sæta ísraelska gæjans. Svo endar hún í öðru eða þriðja sæti. Á topp fimm," segir Páll Óskar.

Þetta kom fram í spjalli Rúnars Róbertssonar við Pál Óskar á Bylgjunni í dag. Viðtalið má heyra hér.

Þarna kynnti hann einnig árlegt Eurovision-partýið sitt á Nasa á laugardagskvöld eftir keppni. Þar segir hann miklu skemmtilegra að vera en á sjálfri keppninni í Noregi. Á laugardaginn ætla Sigga Beinteins og Sissa að syngja Nei eða já, Jógvan Hansen að spila á fiðlu og taka Fairytale og Jóhanna Guðrún að syngja Is It True?


Tengdar fréttir

Eurovision: Hera gerir allt vitlaust - myndband

Við sýnum þennan stutta myndbút sem var tekinn af Heru Björk og Jónatan þegar þau mættu á fjölmiðlafundinn sem haldinn var í Telenor höllinni eftir fyrri undanúrslitakeppni Eurovision sem fram fór í fyrradag.

Eurovision: Við stefnum klárlega á sigur

Við hittum Jónatan Garðarsson sem heldur utan um íslenska Eurovisionhópinn í Osló í hádeginu í dag. „Það sem ég geri er að skipuleggja þetta frá a-ö. Núna eru margir í hópnum sem hafa gert þetta áður og vita hvaða kröfur ég geri," segir Jónatan. Sjá viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði.

Eurovision: Gríska goðið fílar Ísland

Við spjölluðum við söngvarann og lagahöfundinn Giorgos Alkaios, fulltrúa Grikklands í Eurovisionkeppninni, eftir lokaæfinguna í gærdag. Við spurðum gríska goðið út í atriðið hans og hvernig honum líst á íslenska hópinn. Grikkinn komst upp úr fyrri undanúrslitakeppninni með lagið OPA sem fram fór í Telenor höllinni í Osló í gærkvöldi.

Eurovision: Rífur kjaft fyrir Heru

Valgeiri Magnússyni umboðsmanni hefur með ótrúlegum hætti tekist að búa til spennandi stemningu í kringum Heru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×