Viðskipti innlent

Gaman að teika

Þessi pistill er ekki við hæfi barna og gjalda ber varhug við þeim glæfrum sem í honum er lýst. Ég ætla að gera játningu.

Ég hef stundað það að teika. Hér á árum áður var það mikið sport hjá okkur strákunum að hanga aftan í bílum eða teika eins og það var kallað. Þetta var á þeim árum að bíltúrar voru stórkostlegt sport. Bílar ekki í allra eigu og Þingvallahringurinn var stórkostlegt ævintýri svo ekki sé talað um þá paradís sem Eden í Hveragerði var. Ég reyndar fetaði einu sinni í fótspor hinna fyrstu með óknyttum og var vísað úr paradís. Þó ekki að eilífu.

Teik er hættulegt sport þar sem blautir ullarvettlingar gátu orðið manni hættulegir þegar þeir mættu frosnum stuðurum. Nú er varla lengur hægt að teika. Gróðurhúsaáhrif og vel saltaðar götur sjá til þess. Enda kannski eins gott því þetta var varasöm iðja.

Leikir barna búa þau undir lífið og ég er ekki frá því að teikið hafi kennt manni eitt og annað. Maður á aldrei að teika bíla sem er ekið af köllum sem eru stórir og fljótir að hlaupa. Ekki var heldur gott að festast við bílinn. Maður verður að geta sleppt af sjálfsdáðum.

Þetta hefur nýst mér vel. Ég nota þetta oft í fjárfestingum. Ef maður heldur sig við líkinguna þá eru stóru kallarnir sem eru fljótir að hlaupa, þeir sem hafa aðra hagsmuni en maður sjálfur. Þá teikar maður ekki. Svo er hitt að átta sig á að þegar maður er kominn nógu langt þá sleppir maður. Blautir vettlingar eru þá hin sálfræðilega hindrun sem margir glíma við þegar þeir tíma ekki að selja. Ég á ekki við þann vanda að glíma. Enginn vettlingatök hjá mér.

Ég hef teikað nánast alla stóru fjárfestana, Bjöggana, Baug, Kaupþing, Bakkabræður, Þórð í Straumi, FL Group og svo mætti lengi telja. Sumar salibunurnar hafa verið einkar skemmtilegar, í öðrum hefur maður lent á bráðnun kringum ræsi og kastast af. Frá þessu hef ég komist slysalaust og með góðum árangri svo maður hæli sér svolítið. Mér finnst verst að hafa ekki teikað Bjögga full force í Tékkó, en það var ekki tækifæri til þess, nema náttúrlega í gegnum Lansann og Straum. Maður er náttúrlega alltaf með eggin sín í annarra hreiðrum, því maður er bæði gaukur og teikari.

Spákaupmaðurinn á horninu





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×