Nóg að gera hjá björgunarsveitum í dag
Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast í dag. Björgunarskip á Rifi var kallað út vegna smábáts sem bilaði sunnan undir Svörtuloftum á Snæfellsnesi. Ekkert amaði að bátsverjum sem þurftu tog til hafnar. Björgunarfélag Akraness var kallað út vegna manns sem lent hafði í sjálfheldu við gönguleiðina upp að Glym.