Åge fyrir leikinn mikilvæga: Vill að leikmenn njóti augnabliksins
Åge Hareide segir að enn megi lagfæra smáatriði fyrir stórleik morgundagsins gegn Úkraínu og því hafi verið frábært að geta tekið æfingu dagsins upp með dróna. Þá virðist þjálfarinn nokkuð viss um að spennustig leikmanna sé rétt stillt.