Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 11. maí 2024 18:05 Ísraelar hafa sagt innrás nauðsynlega til að uppræta Hamas samtökin. AP/Abdel Kareem Hana Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni.
Ísraelar hafa sagt innrás nauðsynlega til að uppræta Hamas samtökin. Joe Biden, Bandaríkjaforseti, hefur sagst ætla að hætta vopnastuðningi við Ísrael ráðist herinn inn í Rafah. Ísraelsher hefur þó aukið hernað í og við svæðið. Bandaríkjastjórn sagði í gær líklegt að ísraelsk stjórnvöld hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög með notkun sinni á bandarískum vopnum í hernaði á Gasa. Þrátt fyrir það segist stjórn Biden taka loforð ísraelskra stjórnvalda um að þau brjóti hvorki bandarísk lög né alþjóðalög trúanleg. Þannig geti hún haldið áfram að veita Ísraelum hernaðaraðstoð. Tala látinna á Gasasvæðinu nálgast 35 þúsund frá þeim tíma sem Hamas samökin réðust inn í Ísrael þann sjöunda október. „Þeir kölluðu þrisvar á okkur og nágrannarnir sögðu okkur að flýja. Þeir sendu út skipun um að yfirgefa svæðið. Áttum við að bíða hér eftir að við myndum deyja? Við flýðum svo við myndum ekki hljóta sömu örlög og hinir,“ segir Hanan al-Satari, íbúi á svæðinu. Úr kvöldfréttum Stöðvar 2:
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Bandaríkin Joe Biden Mest lesið Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Innlent „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Innlent Heilsaði upp á meint fórnarlömb sín Innlent Rífa íþróttahúsið Innlent Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Innlent Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru Innlent Flughált víðs vegar vegna nýrrar aðferðar við vegaklæðningu Innlent McKellen heill á húfi Erlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Innlent Fleiri fréttir Skilgreina Norðurvígi sem hryðjuverkasamtök McKellen heill á húfi Pútín heimsækir Kim Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Sjá meira