Fótbolti

Jón Dagur lagði upp mark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp eitt af þremur mörkum Oud-Heverlee Leuven í dag.
Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp eitt af þremur mörkum Oud-Heverlee Leuven í dag. Getty/Isosport/

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson átti mikilvæga stoðsendingu þegar Leuven vann Standard Liege í belgísku deildinni.

Leuven vann leikinn 3-1 eftir að hafa lent undir rétt fyrir hálfleik.

Kelvin Yeboah kom Standard Liege í 1-0 á 43. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Youssef Maziz jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks og Nachon Nsingi kom Leuven yfir á 74. mínútu eftir stoðsendingu frá Jóni Degi.

Joren Dom skoraði síðan þriðja markið á 90. mínútu leiksins.

Þetta er sjöunda stoðsendingin hjá Jóni á tímabilinu en hann hefur sjálfur skorað fjögur mörk.

Sigurinn þýðir að Leuven er fjórum stigum á undan Standard Liege í fjórða sæti í úrslitakeppni um sæti í Sambandsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×