Innlent

Frestun verk­falla kemur til greina

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis segist fara bjartsýnn á fund ríkissáttasemjara sem hefst klukkan 12.
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis segist fara bjartsýnn á fund ríkissáttasemjara sem hefst klukkan 12. Vísir/Ívar

Formaður Sameykis segir koma til greina að fresta verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Hann fer bjartsýnn til fundar hjá ríkissáttasemjara og telur að mögulega verði hægt að ljúka samningum áður en aðgerðirnar skella á.

Ríkissáttasemjari hefur boðað stéttarfélög starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtök atvinnulífsins á fund í Karphúsinu á hádegi. Að óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir á flugvellinum síðdegis á fimmtudag.

Vika er liðin síðan samningsaðilar hittust síðast, eða á sunnudag. Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis segir sáttasemjara væntanlega leiða aðila saman nú til að meta hvort hægt sé að halda viðræðum áfram.

„Nú er ég ekki alveg viss um hvaða kraftar voru þar að verki eða hvað hann hefur verið með á sínu vinnuborði frá því við hittum síðar, en reikna með því að hann vilji allavega taka stöðuna.“

Þórarinn segir Sameyki og FFR ganga saman að samningaborðinu sem einn hópur.

„Í vetur byrjaði FFR aðeins fyrr að ræða við Isavia, þau voru búin að vera í samtali við félagið frá því í september. Við settum fram okkar kröfur í byrjun þessa árs og síðan þá ákváðum við að vinna saman að kröfugerðinni því þetta eru sömu málin. Enda erum við að semja fyrir sömu starfsheiti.“

Strandar ekki á launaliðnum

Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við fréttastofu á dögunum að samtökin myndu krefjast þess að aðgerðunum yrði frestað þegar gengið yrði aftur að samningaborðinu. Þórarinn segir það koma til greina. 

„Ég held það komi í raun allt til greina ef það er góður samningsvilji. Ef við sjáum og finnum það að við séum á sameiginlegu ferðalagi við að leysa deiluna, þá getur allt verið uppi á borðum.“

Ég held að svo framarlega sem aðilar tali saman og reyni að ná saman gæti okkur alveg auðnast að ljúka samningum áður en aðgerðir skella á, en það þarf að vera góður vilji.

Kröfur þeirra snúist fyrst og fremst að samræmingu réttinda, vinnuumhverfis og skipulags.

„Isavia hefur samið við einstök stéttarfélög með ólíkum hætti. Samningar okkar og FFR eru ekki nákvæmlega eins hvað varðar vinnutíma og launamyndum sem er afar óheppilegt þegar er verið að vinna undir sama starfsheiti.“

Þannig þetta strandar ekki á launaliðnum?

„Það gerir það ekki. Við getum alveg útfært hann, það er ekki vandamálið.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×