Fótbolti

Real Madrid náði fjór­tán stiga for­skoti á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jude Bellingham fagnar marki sínu í dag en það var það átjánda í deildinni á leiktíðinni.
Jude Bellingham fagnar marki sínu í dag en það var það átjánda í deildinni á leiktíðinni. AP/Manu Fernandez

Real Madrid steig stórt skref í átta að spænska meistaratitlinum með 3-0 sigri á Cadiz í spænsku deildinni í dag.

Brahim Díaz, Jude Bellingham og Joselu skoruðu mörk liðsins í leiknum en þau komu öll í seinni hálfleiknum.

Þetta var átjánda deildarmark Bellingham á leiktíðinni og hann er nú bara einu marki á eftir þeim markahæsta sem er Artem Dovbyk hjá Girona.

Real er með fjórtán stiga forskot á Barcelona en Börsungar eiga fimm leiki eftir.

Vinni Barcelona liðið ekki leik sinn á móti Girona á eftir þá er Real Madrid orðið spænskur meistari.

Þá væri annað hvort þrettán eða fjórtán stiga munur á liðunum og bara tólf stig eftir í pottinum.

Næst á dagskrá hjá Real Madrid er seinni undanúrslitaleikurinn í Meistaradeildinni á móti Bayern München. Fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli í Þýskalandi en sá seinni fer í Madrid á miðvikudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×