Sport

FH-ingar búnir að velja besta FH-lið sögunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Davíð Þór Viðarsson er fyrrum fyrirliði FH og hefur tekið við nokkrum Íslandsmeistaratitlum.
Davíð Þór Viðarsson er fyrrum fyrirliði FH og hefur tekið við nokkrum Íslandsmeistaratitlum. Mynd/Daníel

Knattspyrnudeild FH hefur í vor staðið fyrir kosningu um bestu leikmenn í sögu karlaliðs félagsins og var úrvalsliðið kynnt fyrir fyrsta heimaleik liðsins í Bestu deildinni í sumar, sem var á móti Vestra í dag.

Það eru margir frábærir leikmenn sem hafa spilað fyrir FH í gegnum tíðina og því ekki auðvelt að velja aðeins ellefu leikmenn.

Af þeim sökum eru menn eins og Allan Borgvardt og Hörður Magnússon út í kuldanum. Hörður er þriðji markahæsti leikmaður FH í efstu deild og Borgvardt var tvisvar sinnum kosinn besti leikmaður tímabilsins eða árin 2003 og 2005.

Framherjar úrvalsliðsins eru Atlarnir tveir, Ati Viðar Björnsson og Atli Guðnason ásamt Tryggva Guðmundssyni. Steven Lennon er síðan framarlega á miðjunni og fyrir aftan hann eru Heimir Guðjónsson og Davíð Þór Viðarsson.

Í vörninni eru þeir Guðmundur Sævarsson, Pétur Viðarsson, Tommy Nielsen og Freyr Bjarnason og Daði Lárusson er síðan í markinu.

Um þúsund manns tóku þátt í kosningunni, þar sem velja þurfti leikmenn í ellefu stöður á vellinum. Leikmenn sem tilnefndir voru í hverja stöðu fyrir sig þurftu að hafa leikið að minnsta kosti þrjár leiktíðir með FH frá árinu 1964 til dagsins í dag.

Elsti tilnefndi leikmaðurinn var Bergþór Jónsson, fæddur 1935, en yngstir voru þeir Baldur Logi Guðlaugsson og Ólafur Guðmundsson, núverandi leikmaður FH, sem fæddir eru 2002.

Enginn þeirra komst þó í úrvalsliðið sem má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×