Fótbolti

Ó­vænt úr­slit í fyrstu um­ferð Lengjudeildarinnar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Afturelding gerði jafntefli við Gróttu í kvöld.
Afturelding gerði jafntefli við Gróttu í kvöld. Vísir

Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð Lengjudeildar karla í kvöld. Njarðvíkingar byrja deildina vel en hitt Suðurnesjaliðið tapaði nokkuð óvænt á heimavelli.

Njarðvík var í heimsókn hjá Leikni í Breiðholtinu í kvöld. Njarðvíkingar voru í basli í fyrrasumar en eftir að Gunnar Heiðar Þorvaldsson tók við liðinu fór að ganga betur og Njarðvík tókst að bjarga sæti sínu í Lengjudeildinni.

Gestirnir af Suðurnesjum komust í 2-0 í leiknum í kvöld eftir mörk frá Birni Aroni Björnssyni og Dominik Radic. Staðan var þannig í hálfleik en eftir mark Róberts Quental Árnasyni á 84. mínútu komu Leiknismenn sér inn í leikinn. Þeim tókst þó ekki að jafna og Njarðvík fagnaði 2-1 sigri.

Í Mosfellsbæ mættust Afturelding og Grótta en Mosfellingar fóru alla leið í úrslitaleik umspilsins í fyrra þar sem liðið tapaði fyrir Vestra. Þeir komust yfir strax á 4. mínútu í dag eftir sjálfsmark miðvarðarins reynda Arons Bjarka Jósepssonar en Damian Timan jafnaði metin í 1-1 í síðari hálfleik. Hvorugu liðinu tókst að bæta við marki eftir það og lokatölur 1-1.

Góð ferð nýliðanna til Keflavíkur

Í Keflavík voru ÍR-ingar í heimsókn en hvorugt liðið lék í Lengjudeild á síðasta tímabili. Keflavík féll úr Bestu deildinni en ÍR kom upp úr 2. deild. Öll þrjú mörk leiksins voru  skoruð í fyrri hálfleik í dag. ÍR komst í 1-0 á 24. mínútu með marki Braga Karls Bjarkasonar úr víti. Valur Þór Hákonarson jafnaði tveimur mínútum síðar en Stefán Þór Pálsson skoraði annað mark ÍR á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Lokatölur í Keflavík 2-1 fyrir gestina sem vinna þar með frábæran útisigur í fyrstu umferðinni.

Í Laugardal kom Rafael Victor gestunum í Þór í 1-0 forystu á 29. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Það stefndi allt í 1-0 sigur gestanna en í uppbótartíma jafnaði Jorgen Pettersen metin fyrir Þrótt. Þórsarar áttu sláarskot og fengu dauðafæri eftir jöfnunarmarkið en náðu ekki að tryggja sér sigur. Lokatölur 1-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×