Innlent

Til­vísunum vegna skekkju á höfuð­kúpu ung­barna fjölgað mikið

Lovísa Arnardóttir skrifar
Einhæf baklega getur valdið skerðingum í hálshreyfingum.
Einhæf baklega getur valdið skerðingum í hálshreyfingum. Vísir/Getty

Frá árinu 2018 til 2023 hefur tilvísunum til sjúkraþjálfara á Æfingastöðinni vegna ósamhverfu í hálshreyfingum og skekkju á höfuðkúpu hjá ungbörnum fjölgað úr 123 í 270. Flestum er vísað frá heilsugæslu í ungbarnaeftirliti við tveggja til fjögurra mánaða aldur.

Fjölgun tilvísana er að hluta vegna aukinnar árvekni heilbrigðisstarfsmanna en einnig vegna breyttra umhverfisþátta. Til dæmis er nú mælt með því að börn sofi á bakinu en einnig hefur notkun bílstóla og ýmis konar ungbarnastóla aukist verulega. Þá eru börn með þrýsting á bakhlið höfuðs í lengri tíma en áður. Á sama tíma hefur dregið úr maga- og hliðarlegu ungbarna í vöku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Æfingastöðinni.

„Höfuðkúpa ungbarna er mjúk og mótanleg. Liggi barn oftast með höfuð snúið til sömu hliðar verður höfuðkúpan flatari þeim megin og önnur bein höfuðkúpu skekkjast einnig. Skekkja á höfuðbeinum leiðir oft til truflunar á hálshreyfingum,“ segir í tilkynningunni.

Mynd úr fræðslublaði frá Heilsugæslunni. Höfuð barnsins aflagast ef það liggur of mikið á sömu hliðinni.

Þannig getur mikil og einhæf baklega ungbarna valdið aflögun höfuðkúpu. Ef gripið er inn í nægilega snemma er þó hægt að leiðrétta stöðuna með viðeigandi handtökum og örvun. 

Í tilkynningu frá Æfingastöðinni segir að börn komi aldrei of snemma en að meðferðin verði bæði erfiðari og tímafrekari því eldri sem börnin eru. Meðferðarfjöldi er misjafn, sum koma í nokkur skipti, önnur mun oftar.

Tilvísanir til Æfingastöðvarinnar vegna skekkju í höfuðkúpu barna.

Þar segir einnig að fyrsta vísbendingin um ósamhverfu í hálshreyfingum sé yfirleitt sú að börnin snúa höfði sínu meira eða einungis til annarrar hliðar.

Getur haft áhrif á samspil augna og handa

„Ef börnin liggja ávallt og sofa með höfuðið snúið til sömu hliðar mótast hin mjúka höfuðkúpa þeirra fljótt af þrýstingi frá undirlaginu. Höfuðið verður flatara þeim megin og það verður æ þægilegra að liggja á flötu hliðinni. Hin hliðin verður kúptari og erfiðara verður að snúa yfir á þá hlið og halda jafnvægi þar,“ segir í fréttatilkynningu Æfingastöðvarinnar og að ef skekkjan sé mikil geti verið erfitt fyrir börn að horfa beint upp þegar þau liggja á bakinu.

Þessi einhæfa lega getur valdið skerðingu í hálshreyfingum og vöðvastyttingum, sjónsvið barnsins minnkar og samspil augna og handa þeim megin sem barn horfir frá skerðist.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×