Viðskipti innlent

Lækkar óverðtryggða en hækkar verðtryggða

Árni Sæberg skrifar
Arion banki hefur breytt vöxtum.
Arion banki hefur breytt vöxtum. Vísir/Vilhelm

Arion banki hefur breytt inn- og útlánavöxtum bankans frá og með deginum í dag. Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 8,95 prósent og verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 4,04 prósent.

Í tilkynningu á vef bankans segir að vaxtabreytingar útlána taki mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, meðal annars útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgi að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafi aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taki gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.

Innlánsvextir lækka

Þá segir að vextir innlánareikningsins Vöxtur - fastir vextir, sem er bundinn í níu mánuði, lækki um 0,10 prósentustig.

Vextir innlánareikningsins Vöxtur - fastir vextir, sem er bundinn í tólf mánuði, lækka um 0,20 prósentustig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×