Ef þið eruð góð í salsa eru þið góð í boxi World Class 31. ágúst 2023 08:49 HR/WCBA keppendur eftir glæstan árangur á Hillerød bokscup í Danmörku árið 2022. „Við höfum opnað fullkomnustu hnefaleikaaðstöðu á landinu og með þeim betri í Evrópu,“ segir Davíð Rúnar Bjarnason, yfirþjálfari World Class Boxing Academy en starfsemin er komin á fullt í endurbættu og glænýju húsnæði í Gamla Morgunblaðshúsinu við Kringluna.
Davíð segir sífellt fleiri æfi bardagaíþróttir. Framundan eru spennandi námskeið hjá World Class Boxing Academy og World Class MMA og skráning í fullum gangi. Glæsileg aðstaða er til æfinga í bardagaíþróttum Í World Class MMA á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði. „World Class Boxing Academy hefur stækkað mjög hratt. Stærsta hnefaleikalið á landinu Hnefaleikafélag Reykjavíkur, æfir hjá okkur og við erum að keyra frábært boxkennsluprógramm. Nú eru að hefjast hjá okkur grunn- og framhaldsnámskeið í boxi, Krakkabox, Unglingabox og box fyrir 17 ára og eldri. Við erum líka með BoxFit tíma sem má sækja án þess að hafa klárað grunnnámskeiðið. Í World Class MMA stöðinni hjá World Class á Tjarnarvöllum er Árni „Úr járni“ Ísaksson yfirþjálfari og sér alfarið um skipulagningu og umsjón kennslu. Árni er brautryðjandi hér á landi í blönduðum bardagaíþróttum en hann er með svart belti í brasilísku Jiu Jitsu og fyrrum íslandsmeistari í hnefaleikum. Hann hefur unnið marga titla erlendis í MMA en hann ruddi leiðina mikið á sínum tíma fyrir íslenska bardagakappa sem komu síðar.Árni hefur gríðarlega mikla reynslu sem keppandi í mismunandi bardagalistum og margra ára reynslu sem þjálfari og því óhætt að segja að allir sem koma á Tjarnarvellina að æfa blandaðar bardagaíþróttir (MMA) séu í frábærum höndum en þar er boðið upp á eins og fyrr segir tíma í Kickboxi, Brasilísku Jiu Jitsu og MMA, bæði grunnnámskeið sem og tíma fyrir þá sem eru með reynslu eða hafa lokið grunnnámskeiði áðurm,“ segir Davíð. Árni "Úr járni" Ísaksson í bardaga fyrr á ferlinum. Box náskylt dansi Hverjir eru kostir þess að æfa box? „Box hefur jákvæð áhrif á hausinn. Þú ert eingöngu að keppa við sjálfan þig og box er mjög karakterbyggjandi íþrótt. Við sjáum krakka og unglinga sem koma feimin og lokuð hingað inn, vaxa upp í sterka einstaklinga og það er það sem okkur þjálfurunum finnst allra skemtilegast að sjá. Ég tek það líka fram að þeir sem læra listina og íþróttina hafa engan áhuga á að slást enda erum við að byggja upp mikinn aga hjá iðkendum og erum með sterkt regluverk sem mótar iðkendurna mikið. Stelpur úr HR/WCBA að keppa á stærsta kvennaboxmóti heims "The Golden Girl" en liðið er duglegt að fara erlendis að keppa. Box er snilldar alhliða líkamsrækt sem snýst ekki bara um að kýla með höndunum heldur að nota allan líkamann og í raun mest fæturna,“ segir Davíð, box sé meira að segja náskylt dansi. „Ég lærði box hjá Kúbverja sem segir að ef maður er góður í salsa þá er maður góður í boxi og ég er alveg á því að það er hellingur til í því, „rythminn“ og mýktin er svo mikilvæg í þessu sporti. Stundum kveikjum við á salsa tónlist til að fara yfir boxsporin og boxdansa og það er eitthvað sem allir hafa gaman af. Oft er það líka þannig að þeir koma á námskeið og eru með einhvern grunn í dansi eru yfirleitt fljótari að læra hreyfingarnar og eru með góða samhæfingu.“ Davíð Rúnar yfirþjálfari og Þórarinn Hjartarson aðstoðaryfirþjálfari að fara yfir málin. Tæknin kennd frá grunni Davíð segir vinsældir box alltaf að aukast og fjölbreyttur hópur æfi box. „Við erum með allan skalann, allan aldur, öll kyn. Það er að aukast mikið að hóparnir sem mæta á grunnnámskeið eru að stækka mikið og eru felstir í þeim hóp að koma til að prófa eitthvað nýtt. Það þarf enga þekkingu eða reynslu til að byrja, við kennum allt frá grunni. Margir halda að þetta snúist um að skella í sig góm og byrja strax að boxa inni í hring en það er alls ekki þannig. Þegar kemur að því að „sparra“ eins og það er kallað þegar farið er inn í hring geta þeir sem vilja það ekki boxað á púða. Martin Kitel þjálfari norska landsliðsins í hnefaleikum kom í heimsókn og hélt æfingabúðir með liðinu sínu fyrr á árinu. Frír prufutími Það er alltaf frítt í prufutíma í World Class, sama hvaða námskeið um ræðir og um að gera að mæta í prufutíma í boxið, spjalla við okkur þjálfarana og sjá út á hvað þetta gengur. Það má líka senda á okkur tölvupóst ef fólk hefur einhverjar spurningar á davidboxari@worldclass.is“ segir Davíð.
Heilsa MMA Box Mest lesið Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira