Peningaskápurinn ... 18. nóvember 2006 07:00 ...
Dagsbrún aftur á lausuUppskipting Dagsbrúnar þýðir að Dagsbrúnarnafnið er á lausu, en ekki var laust við að einhverjir firrtust við þegar félagið tók sér nafnið sem áður prýddi Verkamannafélagið Dagsbrún, en það rann svo með fleirum inn í Eflingu. (Svo er náttúrlega til Ungmennafélagið Dagsbrún í Austur-Landeyjum.)Þegar Dagsbrúnarnafnið var tekið upp var það af því að stjórnendum félagsins þótti við hæfi að velja sér gott íslenskt nafn í stað „Group“ eða útlensks nafn. Dagbrún merkir byrjun dagsins og átti að tákna samstöðuna innan félagsins. En þeim gildum má svo sem koma á nýju félögin tvö sem til eru orðin, 365 nær yfir alla daga og ekki bara byrjun þeirra og ekki vantar samtöðuna í Teymið.Fasteignaverð tekur dýfuSamkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins mældist vísitala íbúðarverðs 306,1 stig í október og hefur lækkað um 2,2 prósent frá fyrri mánuði. Sérbýli hefur lækkað mest, eða um 3,2 prósent, en einnig hefur þarna áhrif 1,7 prósenta lækkun í fjölbýli. „Sem fyrr er flökt í verði sérbýlis mun meiri en í verði fjölbýlis. Vakin er athygli á því að aðeins 80 kaupsamningar voru yfir sérbýli í október og því hefur hver og ein eign mikil áhrif á þróunina milli mánaða meðan 411 kaupsamningar voru um fjölbýli. Þetta skýrir mun á verðflökti milli sérbýlis og fjölbýlis,“ segir greiningardeild Kaupþings og bendir um leið á að velta á húsnæðismarkaði sé að aukast, raunar um 22 prósent milli mánaða. Verðhjöðnun á fasteignamarkaði segir bankinn skýrast af því að stýrivextir Seðlabankans séu teknir að bíta.
Markaðir Peningaskápurinn Viðskipti Mest lesið Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Ísland að detta úr tísku Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Sjá meira