Tónlist

Spaugelsi í Neskirkju

Lúðrasveit Reykjavíkur Flytur nýtt verk eftir Báru Grímsdóttur á hausttónleikum sínum.
Lúðrasveit Reykjavíkur Flytur nýtt verk eftir Báru Grímsdóttur á hausttónleikum sínum.

Lúðrasveit Reykjavíkur heldur sína árlegu hausttónleika í Neskirkju í kvöld.

Sveitinni til fulltingis er hollenski slagverksleikarinn Frank Aarnink en hann leikur hér einleik á marimbu í verkinu Concertino for Marimba and Winds eftir Alfred Reed. Aarnink er fastráðinn slagverks- og pákuleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands en hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífi hér á landi og meðal annars starfað sem slagverksleikari við Íslensku óperuna, slagverkshópinn Bendu, Kammersveit Reykjavíkur, Caput, Atón og Lúðrasveit Reykjavíkur.

Á tónleikunum verður frumflutt nýtt verk eftir Báru Sigurjósdóttur, Spaugelsi en þetta er annað verk hennar sem Lúðrasveit Reykjavíkur flytur. Áður hefur sveitin leikið hinn sívinsæla slagara Hver tók ostinn minn?. Á efnisskránni í kvöld eru enn fremur verk eftir Eric Swiggs, Gerard Boedijn og syrpa af lögum hljómsveitarinnar Earth, Wind and Fire.

Stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur er Lárus Halldór Grímsson. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30 og er aðgangur ókeypis og ölum frjáls meðan húsrúm leyfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×