Viðskipti innlent

Fóru í fyrsta flugið milli Cal­gary og Kefla­víkur­flug­vallar

Atli Ísleifsson skrifar
Klippt var á borða á Keflavíkurflugvelli í dag.
Klippt var á borða á Keflavíkurflugvelli í dag. Isavia

Kanadíska flugfélagið WestJet fór í dag í sínar fyrstu ferðir milli Calgary í Albertafylki og Keflavíkurflugvallar. Fyrsta fluginu var sérstaklega fagnað í morgun þar sem forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet klipptu á borða áður en flogið var frá Keflavíkurflugvelli.

Í tilkynningu frá Isavia segir að WestJet fljúgi á Boeing 737MAX vél milli Calgary og Keflavíkurflugvallar fjórum sinnum í viku fram í miðjan október næstkomandi.

Fram kemur að WestJet hafi gert samning við Icelandair þess efnis að farþegar kanadíska flugfélagsins geti bókað sig áfram á einum flugmiða frá Calgary í gegnum Keflavíkurflugvöll áfram til áfangastaða Icelandair í Evrópu. Það sama sé í boði fyrir farþega sem fljúgi frá Keflavík til Calgary sem geti farið áfram til annarra áfangastaða WestJet víða um heim.

Haft er eftir Angelu Avery, framkvæmdastjóra hjá WestJet, að áfangastaðurinn Ísland byði upp á landslag sem væri hrífandi og jarðfræðilega fjölbreytt. „Við erum afskaplega ánægð með að geta bætt Íslandi við sem nýjum beinum áfangastað okkar í Evrópu.“ Hún benti á að WestJet væri eina flugfélagið sem tengdi Ísland við Calgary.

Þá er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia, að hann hlakkaði til samstarfsins við WestJet sem yrði mikilvægur samstarfsaðili flugvallarins til framtíðar. „Sú ákvörðun WestJet að hefja þetta áætlunarflug styður við þá framtíðarsýn okkar að tengja heiminn í gegnum Ísland.“

Flugvél Westjet á Keflavíkurflugvelli í morgun.ISAVIA

„Þessi nýja flugleið er meira en bara tenging milli tveggja borga, þetta snýst um að viðurkenna gagnkvæma skuldbindingu við alþjóðlegar tengingar,“ segir Chris Dinsdale, forstjóri og stjórnarformaður hjá alþjóðaflugvellinum í Calgary.

„Við á Keflavíkurflugvelli tökum fagnandi á móti nýjum vinum okkar hjá kanadíska flugfélaginu WestJet,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli. „Við hlökkum mikið til að fá félagið sem nýja viðbót í flugvallarsamfélagið á Keflavíkurflugvelli. WestJet hefur, með því að velja Ísland sem nýjan áfangastað, sýnt að það hefur trú á því að farþegar haldi áfram að vilja upplifa það sem náttúran hefur upp á að bjóða hér í Norðri. Ferðalöngum WestJet verður tekið með opnum örmum. Þá veit ég að Íslendingar eiga eftir að velja Calgary sem nýjan og spennandi áfangstað þar sem njóta má alls sem borgin og Albertafylki hafa upp á að bjóða. WestJet verður sterkur samtarfsaðili til framtíðar og mikilvæg viðbót á Keflavíkurflugvelli.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×