Innlent

Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumar­bú­stað“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar.
Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar.

Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir að leiguverð sem fasteignafélagið Þórkatla hafi sett á seldar eignir í bænum alltof hátt - og alls ekki til þess fallið að fá fólk til að snúa aftur í bæinn. Hann reiknar ekki með að margir nýti sér úrræðið en fyrri eigendum húsanna býðst að leigja þau á 625 krónur fermetrann.

Þórkatla, fasteignafélagið sem sér um kaup á húsnæði Grindvíkinga, tilkynnti í gær að það hefði nú samþykkt kaup á 660 eignum og undirritað 471 kaupsamning. Þórkatla muni jafnframt leigja út þær fasteignir sem félagið hefur keypt, fyrst um sinn eingöngu til fyrri eigenda. Leigan verði í kringum 625 krónur á fermetra út árið, auk þess sem leigutaki greiði hita og rafmagn.

Hjálmar Hallgrímsson formaður bæjarráðs Grindavíkur segir segir marga Grindvíkinga hafa keypt hús annars staðar. Þeir sjái ekki fyrir sér að geta borgað þetta háa leigu samhliða rekstri nýja heimilisins.

„Fólk vildi leigja húsin sín áfram upp á von um að koma til baka. En ef þetta er leiguverðið, ef við tökum bara 200 fermetra hús, þá ertu að borga 200 þúsund á mánuði,“ segir Hjálmar.

„Þannig að þetta er alltof hátt verð og engan veginn til þess fallið að fólk vilji koma til baka. Þetta er það sem ég heyri allt í kringum mig, að verðið sé alltof hátt, því fólk er að reka annað heimili. Það er búið að kaupa sér annars staðar hús og það er ekki að fara að borga 200 þúsund krónur fyrir heimili sem það notar sem sumarbústað.“

Hjálmar reiknar því ekki með að margir nýti sér úrræðið og hvetur Þórkötlu til að endurskoða skilmálana. Sjálfur hefur Hjálmar meira og minna búið í Grindavík síðustu mánuði og segir óvissuna í kringum jarðhræringarnar nú afar óþægilega.

„Þetta er alls ekki nógu gott, nú er búin að vera spá um eldgos og búin að hanga lengi yfir. Ekkert hefur gerst í Grindavík en það er rétt hjá þér, það eru allir að bíða eftir að eitthvað gerist og fólk er með varann á sér. Þetta er óþægilegt ástand. Það er búið að liggja yfir spá og milljónir rúmmetra streyma inn en það gerist ekkert hér.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×