Innlent

Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Björgunarmenn á vettvangi, þar sem báturinn marar í hálfu kafi.
Björgunarmenn á vettvangi, þar sem báturinn marar í hálfu kafi. Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein

Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum.

Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni barst neyðarkall frá umræddum skipstjóra klukkan 2:42, þess efnis að annar bátur væri að sökkva um það bil sex sjómílur norðvestur af Garðskagavita.

Þyrlusveit Gæslunnar var þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi, ásamt sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þá var nálægum skipum og bátum stefnt á vettvang.

Manninum á bátnum var bjargað úr sjónum af kollega sínum.Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein

„Skömmu eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann þangað,“ segir í tilkynningunni frá Gæslunni, sem barst fjölmiðlum rétt eftir klukkan fjögur í nótt.

 Þá segir að báturinn hafi marað í hálfu kafi en björgunarsveitir myndu freista þess að draga hann til hafnar.

„Landhelgisgæslan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.“

Björgunarsveitir hugðust freista þess að draga bátinn í land.Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×