Innlent

Miklar breytingar á fylgi fyrir kapp­ræður Stöðvar 2 í kvöld

Heimir Már Pétursson skrifar
Jón, Halla Hrund, Halla, Katrín, Baldur og Arnar Þór mætast í kappræðum.
Jón, Halla Hrund, Halla, Katrín, Baldur og Arnar Þór mætast í kappræðum. vísir

Miklar breytingar eru á fylgi forsetaframbjóðenda samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna sem greint verður frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Viðbragða verður leitað hjá sex efstu forsetaframbjóðendum samkvæmt könnunum sem mæta í kappræður í beinni útsendingu opinni dagskrá strax að loknum kvöldfréttum.

Nú er rétt um hálfur mánuður þar til þjóðin kýs sjöunda forseta lýðveldisins. Frá 8. apríl hafa verið birtar að minnsta kosti fimmtán kannanir um fylgi frambjóðenda þar sem fylgið hefur verið á mikilli hreyfingu. Í kvöld birtum við nýja könnun Maskínu sem sýnir töluverðar breytingar á fylginu.

Að loknum kvöldfréttum koma þau Arnar Þór Jónsson, Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir til fyrri kappræðna Stöðvar 2 fyrir komandi kosningar. Þar verður leitað viðbragða við könnuninni en frambjóðendur einnig spurðir spjörunum úr.

Við heyrum einnig skoðanir almennings á forsetaembættinu og spyrjum nokkurra spurninga sem fólk hefur sent okkur.

Fylgið hefur haldið áfram að sveiflast í maímánuði og þá ekki bara í efstu sætunum. Því í könnunum bæði Prósents og Gallups í síðustu viku tvöfölduðu Halla Tómasdóttir og Arnar Þór Jónsson fylgi sitt frá síðustu könnunum þar á undan. Halla Tómasdóttir mældist með um 12 prósent í síðustu könnunum Prósents og Gallup og Arnar Þór um 6 prósent.

Aðrir frambjóðendur hafa ekki hlotið náð fyrir kjósendum í könnunum. Mælast oftast undir tveimur prósentum og jafnvel einu prósenti. Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar ákvað því að bjóða sex efstu frambjóðendum til kappræðna í kvöld klukkan 18:55. Þátturinn verður í beinni útsendingu og opinni dagksrá á Stöð 2 og Vísi.

Þetta eru fyrri kappræður af tveimur. Frambjóðendur munu aftur mæta í beina útsendingu þegar tveir dagar verða til kosninga hinn 30. maí.


Tengdar fréttir

Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum

Mun færri hafa kosið utan kjörfundar fyrstu tíu dagana fyrir forsetakosningarnar nú en í forsetakosningunum 2020. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir aðsóknina hafa tekið kipp í gær og reiknað væri með að tæplega 45 þúsund muni kjósa utan kjörfundar á höguðborgarsvæðinu fram að kosningum.

Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur

Kappræður Ríkisútvarpsins þann 3. maí virðast hafa haft talsverð áhrif á hug kjósenda. Frammistaða frambjóðenda hafði þó meiri áhrif á konur en karla og meiri áhrif á ungt fólk en eldra.

Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mælist með mest fylgi í nýrri könnun á vegum Maskínu. Hún hefur aukið fylgi sitt um þrjú prósentustig frá síðustu könnun og mælist nú með 29,4 prósenta fylgi. Fylgi Jóns Gnarr heldur áfram að dragast saman og það sama gildir um fylgi Baldurs Þórhallssonar. Ekki er marktækur munur á fylgi Höllu Hrundar og Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×