Lífið

Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Viktor sýndi töfrabragð í þættinum og bað áhorfendur um að reyna þetta ekki heima.
Viktor sýndi töfrabragð í þættinum og bað áhorfendur um að reyna þetta ekki heima. Vísir

Viktor Traustason forsetaframbjóðandi á nokkuð auðvelt með að borða sterkan mat. Hann sýnir einstakt töfrabragð sem hann lærði af götuhundum í Grikklandi og lýsir því hvað honum finnst um að tala um fjölskylduna sína.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í öðrum þætti Af vængjum fram, nýjum skemmtiþætti á Vísi í tilefni af forsetakosningum. Þar setjast forsetaframbjóðendur niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli. Von er á öllum forsetaframbjóðendum í þáttinn næstu vikur. 

Klippa: Af vængjum fram - Viktor Traustason

Hlátur Jóns Gnarr mesta hrósið

„Það er eitt mesta hrós sem ég hef held ég fengið. Ég tók því allavega þannig,“ segir Viktor um augnablikin í kappræðum RÚV þar sem Jón Gnarr meðframbjóðandi Viktors skellihló að ýmsu sem Viktor hafði að segja.

„Ég segi líka við fólk: Þó svo að hlutir séu alvarlegir þá þýðir það ekki að við getum ekki haft gaman af þeim, þannig að eins og ég segi þá tók ég því bara sem hrósi.“

Blandar ekki fjölskyldunni í málin

Viktor heldur spilunum þétt að sér og vill lítið ræða fjölskyldu sína. Þá er sömu sögu að segja um fjölskyldutengsl hans og Ástrósar Traustadóttur dansara og áhrifavalds, systur hans.

„Ég ætla ekkert að vera að blanda fólki sem er í mínu persónulega lífi inn í þetta ferli,“ segir Viktor meðal annars. Hann segir framboðið sitt snúast um ákveðna hluti.

Þá syngur Viktor þjóðsönginn. „Heyrðu, ég kunni þetta. Sem er örugglega ástæðan fyrir því að ég gat aldrei orðið íþróttamaður.“

Af hverju gastu aldrei orðið íþróttamaður?

„Nú af því að þeir standa alltaf á vellinum og kunna ekki textann,“ segir Viktor sem fer á kostum í þættinum og sýnir töfrabragð sem hefur líklega hvergi sést áður. 

Fleiri þætti af Af vængjum fram má sjá á sjónvarpsvef Vísis.


Tengdar fréttir

Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk

Viktor Traustason forsetaframbjóðandi segist finna fyrir létti að hluta til eftir að Landskjörstjórn úrskurðaði um gildi framboðs hans í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×