Fótbolti

Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar fagna hér sigri og titli Bayern München í dag.
Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar fagna hér sigri og titli Bayern München í dag. Getty/Christof Koepsel/

Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Bayern München tryggðu sér í dag þýska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Bayer Leverkusen á útivelli.

Með þessum sigri náði Bayern sjö stiga forskoti á Wolfsburg þegar það eru aðeins tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Liðið hefur því tryggt sér titilinn. Lið Bayern og Wolfsburg mætast síðan í bikarúrslitaleiknum á fimmtudaginn og þar getur Bayern því unnið tvöfalt.

Glódís Perla lék allan leikinn í vörn Bayern en hún sem fyrirliði liðsins tók á móti bikarnum.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ekki í hóp hjá Bayern og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í liði Leverkusen en hún er þar á láni frá Bayern. Karólína Lea spilaði fyrstu 78 mínúturnar í leiknum.

Enska landsliðskonan Georgia Stanway kom Bayern í 1-0 á 18. mínútu með marki af stuttu færi eftir harðfylgni og undirbúning Jovönu Damnjanovic.

Stuttu síðar gerði Glódís mistök þegar hún missti frá sér boltann og varð í framhaldinu að taka á sig gult spjald. Sjaldséð mistök hjá okkar konu.

Staðan var síðan orðin 2-0 á 27. mínútu eftir mark frá Lindu Dallmann. Markið kom eftir hornspyrnu.

Nikola Karczewska minnkaði muninn fyrir Leverkusen á 63. mínútu með umdeildu marki. Aðstoðardómarinn dæmdi þá að boltinn hefði farið yfir línuna en það var erfitt að sjá það á á sjónvarpsmyndunum hvort það var rétt hjá henni eða ekki.

Það er hins vegar engin marklínutækni í þýska kvennaboltanum og því var ákvörðuninni ekki breytt.

Við þetta mark kom aftur spenna í leikinn. Það litu aftur á móti ekki fleiri mörk dagsins ljós og því var bæði sigur og titill Bayern kvenna í höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×