Lífið

Japaninn sló heims­met í Hlíðar­fjalli

Bjarki Sigurðsson skrifar
 Ryoyu Kobayashi eftir að hann sló metið.
Ryoyu Kobayashi eftir að hann sló metið. Red Bull

Japaninn Ryoyu Kobayashi sló í dag heimsmet í skíðastökki þegar hann stökk 291 metra í Hlíðarfjalli á Akureyri. Metið fyrir tilraun Kobayashi var 253,5 metrar og í eigu Austurríkismannsins Stefan Kraft. 

Kobayashi hefur dvalið á Akureyri síðustu vikur og beðið eftir rétta tímapunktinum til að reyna að slá metið. Stökkpallurinn var unninn af verkfræðistofunni Cowi á Akureyri í samstarfi við orkudrykkjaframleiðandann Red Bull. 

Það hefur reynst erfitt að fá upplýsingar um tilraunir Kobayashi en mikil leynd hefur hvílt yfir viðburðinum. Samkvæmt heimildum fréttastofu gerði Red Bull samning við Akureyrarbæ varðandi upptökur af tilraununum og verður lokað upp í fjall þar til öllu er lokið.

Kobayashi stefndi á að stökkva þrjú hundruð metra en virðist hafa sætt sig við 291 metra miðað við myndband sem Red Bull birti á samfélagsmiðlum í dag. Heimsmetið hefur þó enn ekki verið staðfest.

Klippa: Setti nýtt heimsmet í Hlíðarfjalli

Tengdar fréttir

Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu

Japanski skíðastökkvarinn Ryoyu Kobayashi gerði í morgun aðra atlögu að því að stökkva yfir 300 metra í Hlíðarfjalli í dag. Mikil leynd hvílir yfir viðburðinum sem er hluti af markaðssetningu Red Bull drykkjarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×