Viðskipti innlent

Sam­þykkja helming um­sókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar

Kjartan Kjartansson skrifar
Á áttunda hundrað umsókna um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur borist félaginu Þórkötlu.
Á áttunda hundrað umsókna um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur borist félaginu Þórkötlu. Vísir/Arnar

Stefnt er að því að lokið verði við að samþykkja helming umsókna Grindvíkinga um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði þeirra fyrir lok þessarar viku. Þegar hafa verið samþykkt kaup á 263 fasteignum í Grindavík fyrir um tuttugu milljarða króna.

Alls hafa 732 umsóknir borist Þórkötlu, félagi sem komið var á fót til þess að halda utan um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði þeirra Grindvíkinga sem það vilja, og af þeim afa 264 verið samþykktar til þessa. Stjórn félagsins ætlar sér að samþykkja kaup á hundrað eignum til viðbótar í þessari viku og verður þá búið að samþykkja rúman helming umsóknanna, að því er segir í tilkynningu frá Þórkötlu.

Borið hefur á gagnrýni á meðal Grindvíkinga á að uppkaup ríkisins gangi ekki nógu hratt fyrir sig. Hópur þeirra mótmælti fyrir framan þinghúsið á Austurvelli í síðustu viku.

Í tilkynningu Þórkötlu segir að nú sú hægt að afgreiða fleiri mál en áður eftir að lokið var endanlega við samninga við lánveitendur um helgina. Reynt sé að láta ferlið ganga hratt fyrir sig en viðbúið sé að mál komi upp sem skoða þurfi betur og lengri tíma taki að ganga frá þeim kaupum.

Þar vísar félagið meðal annars til tilfella þar sem brunabótamat eigna hefur hækkað verulega frá því í nóvember, þegar meiriháttar jarðhræringar hófust við Grindavík, og fasteignir sem séu skráðar ókláraðar og hafa ekki fengið lokaúttekt þótt fjöldi ára sé liðinni frá því að þær voru byggðar.

Samþykktar umsóknir fara í kaupsamningsgerð sem getur tekið allt að tíu virka daga.


Tengdar fréttir

Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu

Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum.

Fyrstu kaup Þór­kötlu í Grinda­vík gengin í gegn

Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur munu fá greitt út 95 prósent af kaupverði eigna þeirra í næstu viku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×